fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Ég ætla að ljúka umræðunni og þakka hv. þingmanni spurninguna.
Varðandi breytingar á tölugrunni þingsályktunartillögunnar vil ég vísa í ábendingu meiri hlutans úr nefndaráliti sem ég náði ekki að fara yfir áðan þar sem meiri hlutinn áréttar eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Uppbygging greinargerðarinnar er með þeim hætti að erfitt er að tengja markmið og áherslur stefnumörkunar við fjármögnun hvers málefnasviðs. Birtingarmynd þessa kemur fram í umsögnum þar sem margir umsagnaraðilar eru sammála markmiðum sem fram koma á einstökum málefnasviðum en telja að þau náist ekki fram með þeirri fjármögnun sem boðuð er.“
Nefndinni var viss vandi á höndum við að ráða í hvernig vægi einstakra málaflokka væri samkvæmt áætluninni. Þess vegna þurfum við að gera upp við okkur, og er verklag inn í framtíðina varðandi breytingar: Erum við að fara að gera breytingar? Ætlum við að nota þetta verkfæri til einhvers annars og þá í því sjónarmiði að það verði endurskoðað árlega eins og gert er ráð fyrir með áætluninni?
Varðandi hagvöxtinn. Við höfum þjóðhagsspá Hagstofunnar. Vissulega erum við í gólfi stefnunnar. Ég get alveg sagt það að af því að við höfum tengt það við breytingarnar. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að útgjaldaaukningin er gríðarlega mikil. Við drögum það fram í greiningarvinnu nefndarinnar að á þessum tíma, og þar nýttist grunndæmið mjög vel, er útgjaldaaukinn mjög mikill. Hins vegar vorum við á toppi hagsveiflunnar 2016 og hagfræðingar deila mjög um að við getum svo (Forseti hringir.) tímasett útgjaldaaukningu til þess að draga úr þeirri hagvaxtarminnkun sem spáð er og minnkað líkur á að við förum inn í samdráttarskeið, vonandi.