148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[13:20]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni spurninguna. Ég vil glaður taka fram að hv. þingmaður stóð sig afar vel og sótti fast að nefndin nýtti sér grunndæmið og fengi grunndæmið og það ber að þakka. Hann studdi jafnframt vel og kom með athugasemdir varðandi sameiginlegar ábendingar nefndarinnar, þar sem grunndæmið nýttist mjög vel. Að hluta til er um að ræða aðferð fyrir ráðuneytið til að vinna eftir en það er gott að sjá þau lögbundnu verkefni sem eru í grunninn og sjá svo viðbótina. Þá er hægt að greina mjög vel þær fjárfestingar og aðgerðir sem ríkisstjórnin m.a. fer í, þær viðbætur, eins og kemur ágætlega fram í grunndæminu og er það vel.

Varðandi það að ekki sé hægt að gera breytingar. Vissulega getum við gert breytingar en það er ákveðinn vandi við að gera slíkar breytingar ef haft er í huga að þetta er í árlegri endurskoðun. Við höfum verið að horfa á heildartölur, t.d. gagnrýnar ábendingar fjármálaráðs sem eru í gólfi stefnunnar, þar sem segir hreinlega, og það getur auðvitað komið til þess, að hafa þurfi meira borð fyrir báru. Það þekkjum við frá Svíþjóð, þar er horft á heildarsamhengið. Þá þurfum við að hafa tíma og verkfæri til að (Forseti hringir.) reikna hvaða áhrif það hefur á innbyrðissamhengi allra málefnasviða og málefnaflokka. Það er mikil vinna fram undan í því.