fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Varðandi fyrri hluta spurningarinnar, af hverju nefndin hafi ekki fengið útskýringar á því hvaða forsendur lægju að baki stöku markmiðum í umfjöllun um málefnasviðin, þá fengum við þær skýringar — við sendum spurningu um af hverju það væri ekki í áætluninni núna sem lagt var upp með í síðustu áætlun, það er skortur á samræmdu bókhaldi. Ég tel að nefndin eigi að ganga fast eftir því að svo verði í framtíðinni. Það mun auðvitað hjálpa mjög mikið til við það sem er í seinni hluta spurningarinnar, þegar við fjöllum um stefnumótun stjórnvalda. Ég held að við höfum rætt, út frá þessum miklu fjárfestingum og útgjaldaaukningu, heildarstefnumótunina, það sem ríkisstjórnin var kosin til að gera, þ.e. að fara í mikla innviðauppbyggingu. Það koma mjög sterkt fram í ríkisfjármálaáætluninni þær fjárfestingar sem ég fór yfir í ræðu minni áðan.
Varðandi einstök málefnasvið og stofnanir skorti upp á tölugrunninn, eins og komið hefur fram. En ég vil samt sem áður vísa í mjög góðar umsagnir frá fastanefndum. Þar er meiri og ítarlegri umfjöllun. Kannski get ég tekið þetta sem ábendingu. Við í meiri hlutanum gerðum okkur far um að nýta okkur þær umsagnir inn í vinnu okkar í nefndaráliti til að koma sjónarmiðum fram, en það mætti nýta sér það betur þegar kemur að því að fjalla um einstök markmið og stefnu sem snýr að einstökum málum.