fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hv. þingmaður spyr: Hvað ætlum við að gera með þennan pening? Með fjárlögum erum við með fylgirit sem útlistar það mun nánar eftir málaflokkum. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sjái ekki fyrir sér — af því að við erum auðvitað alltaf að reyna að betrumbæta verklag, þetta snýst um það. Við hljótum að vera komin lengra ef við horfum á hefðbundna stefnumótun. Ég spyr hv. þingmann í leiðinni hvort hann sé ekki sammála því að þetta horfi til bóta að vera komin í svona hefðbundið stefnumótunarferli sem hv. þingmaður lýsti ágætlega bæði í ræðu sinni og kemur fram í nefndaráliti hv. þingmanns. Mér fannst það mjög vel gert.
Við erum á betri stað. Mér finnst hv. þingmaður ganga lengra í sinni ræðu en til að mynda í gagnrýni fjármálaráðs sem er afar vönduð og ég geri ekki lítið úr gagnrýni. Gagnrýnin hugsun er holl, en ég vil spyrja hv. þingmann út í hvað hann sjái fyrir sér til bóta. Nú ætla ég að leggja til hliðar það sem kemur sameiginlega fram varðandi kostnaðarmat og ábatagreiningu stakra markmiða í ferlinu sem hv. þingmaður lýsti ágætlega. Nú kemur að því að þegar við komum aftur til þings í haust liggja fyrir fjárlög og þessar skýrslur ráðherra sem hv. þingmaður kom inn á. Vinna hv. fjárlaganefndar er orðin þannig að þetta er allt árið og við erum í raun og veru í umfjöllun um hvert stórmálið á fætur öðru. Hvernig sér hv. þingmaður það fyrir sér, bara ráðleggingar til okkar af því að hér er hv. fjárlaganefnd öll (Forseti hringir.) að störfum í þessari umræðu, aðeins um það.