148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[14:07]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirgripsmikla yfirferð eins og hans var von og vísa. Hv. þingmaður fer ekkert í launkofa með skoðun sína á beitingu stjórnvalda á fjáraukanum í gegnum árin. Í lögum um opinber fjármál kemur hinn lögbundni varasjóður fjármálaráðherra til sögunnar, honum er ætlað að stemma stigu við þessu. Ég veit að hv. þingmaður kom aðeins inn á þetta áðan en mig langar aðeins að hnykkja á þessu og spyrja hvort hann deili áhyggjum af þessu með mér, vegna þess að mér finnst það áhyggjuefni að það hafi ekki tekið ríkisstjórnina meira en nokkrar vikur eða mánuði til að falla á því prófi varðandi beitingu varasjóðs þegar helmingurinn er nýttur strax á vormánuðum í samgöngubætur.

Ég held að það sé alveg sama hvernig menn útbúa málið; miðað við þá umræðu og þá stöðu sem verið hefur í samgöngumálum undanfarið er algjörlega ómögulegt að draga upp þá mynd að hér hafi verið um ófyrirséð eða óvænt útgjöld að ræða. Menn geta svo sem verið með hártoganir en ef maður sest upp í bíl á 100 km hraða og keyrir áfram án allra viðvarana í átt að hyldýpinu, er ekki algjörlega með á hreinu hvenær maður kemur að því en veit að það er þarna og slær aldrei af, þá er það varla mjög óvænt þegar maður fer fram af. En einhvern veginn á þennan hátt var nú samt málflutningur hæstv. samgönguráðherra á þinginu fyrr í vikunni þegar einmitt þetta mál var rætt.

Það skiptir miklu máli að við komum þessu málum í lag af því að lög um opinber fjármál voru sett á laggirnar til þess að auka festu í fjármálum og gagnsæi. Þetta skref var tekið, að koma varasjóðnum á, til þess að koma í veg fyrir þessa hentistefnu í nýtingu á fjáraukanum, til þess að auka festuna, til þess að auka gagnsæið, að hluta til a.m.k. En ef hann verður notaður svona þá sitjum við bara í sömu sporum. Mig langar að byrja á því að fá að heyra í hv. þingmanni, hvaða skoðun hann hefur á þessari skýringu, þessari réttlætingu á því að nota helming varasjóðsins strax í þetta.