fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Eins og það var áður þurfti Alþingi sérstaklega að fjalla um fjáraukalög og samþykkja þau, og þau voru bundin þessum sömu skilyrðum og varasjóðurinn núna. Það að ráðherra þurfi ekki að fara með notkun á varasjóðnum í gegnum þingið er í rauninni ákveðin stytting, styttri leið. En það er ítrekað á sama tíma að þessar takmarkanir um ófyrirséða og óhjákvæmilega og tímabundna notkun á að túlka rosalega þröngt. Það á að hamla því að hægt sé að grípa í varasjóðinn. Mér finnst gott að þessi styttri leið sé möguleg. Það kostar rosalega mikinn tíma og vinnu að fara með þetta allt í gegnum þingið. Og þegar mál uppfyllir vissulega skilyrðin þá myndi þingið væntanlega samþykkja það hvort sem er. En það er áhugaverður munur á núverandi fyrirkomulagi og því eldra. Ef skilyrðin eru ekki uppfyllt ætti Alþingi samkvæmt öllu ekki heldur að skrifa undir slíkan fjárauka, en það virðist ekki vera nein leið fyrir þingið til að segja nei.
Ráðherra úthlutar bara úr varasjóði, segir að úthlutunin uppfylli skilyrðin og svo virðist vera, samkvæmt túlkunum sem ég hef heyrt, að enginn geti gert neitt. Ráðherra á að kynna fyrir fjárlaganefnd úthlutun úr varasjóði og ég myndi halda að ef fjárlaganefnd, og í kjölfarið kannski þingið, staðfestir ekki að það sé farið eftir þeim takmörkunum sem úthlutun úr varasjóðnum er háð, þá endi málið þar. Ríkisstjórnin verður að útskýra, rökstyðja út frá þessum takmörkunum, af hverju það er löglegt fyrir hana að úthluta úr varasjóðnum. (Forseti hringir.) Í þessu tilviki hefur hún ekki gert það.