fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Fjármálaáætlun ríkisstjórnar er grundvallarályktun, enda kemur þar fram forgangsröðun og stefna ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Í því ljósi er fjármálaáætlunin mikil vonbrigði þegar kemur að nauðsynlegri innviðauppbyggingu, auknum jöfnuði og markvissum ríkisrekstri. Nú þegar fjármálaáætlunin liggur til grundvallar er ljóst að meiri hluti fjárlaganefndar ætlar ekki að gera neinar breytingar á áætluninni þrátt fyrir fjölmargar athugasemdir. Takið eftir, fjármálaáætlun er til fimm ára og inniheldur ríkisútgjöld upp á 4.800 milljarða. Það sér hver maður að það er ótrúlegt að meiri hluti fjárlaganefndar sjái ekki einu sinni ástæðu til að hnika til krónu þegar nefndin fær málið til sín. Enn sem fyrr er vinna fjárlaganefndar og Alþingis sjónarspil eitt þar sem framkvæmdarvaldið nær sínu fram og löggjafinn virkar sem stimpilstofnun ráðherranna. Innkoma Vinstri grænna í ríkisstjórn breytir þar engu um. Þótt fjármálaáætlun eigi að heita þingsályktun er vandséð hver aðkoma þingsins er að þeirri áætlun fyrir utan almennt spjall þingmanna um áætlunina við hagsmunaaðila á fjölmörgum fundum sem skila í raun litlu sem engu.
Rifjum aðeins upp. Í fyrstu fjárlögum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur voru gerðar breytingar upp á heil 2,2% frá fjárlögum síðustu ríkisstjórnar en þau fjárlög höfðu Vinstri græn gagnrýnt hatrammlega þegar þau voru í stjórnarandstöðu. Þá gerði meiri hluti Alþingi engar breytingar á fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar sem þó fékk 80 ábendingar og athugasemdir frá hagsmunaaðilum. Og nú gerir meiri hluti fjárlaganefndar það sama með fjármálaáætlunina, engar breytingar þrátt fyrir fjölmargar athugasemdir. Við ræddum þetta áðan og það er mjög ámælisvert, að við þingmenn og sérstaklega meiri hlutinn treysti sér ekki til að gera eina einustu breytingu á jafn viðamikilli áætlun og fjármálaáætlunin er.
Til hvers erum við hér? Við erum ekki bara hérna til að stimpla athugasemdalaust frumvörp og áætlanir ráðherra. Þannig er þetta ekki hugsað, stjórnarskráin gerir ekki ráð fyrir svona vinnulagi og við þurfum að komast upp úr því. Þetta er gamaldags ráðherraræði sem við þurfum sem heild að komast frá með einum eða öðrum hætti.
Fjármálaáætlun er til fimm ára og eru því allar tölur í henni ansi bólgnar samanlagt því að um er að ræða, eins og ég gat um áðan, ríkisútgjöld upp á 4.800 milljarða. Það verður því að teljast talsvert afrek hjá ríkisstjórnarflokkunum að kynna plagg upp á slíkar upphæðir en uppskera nánast eintóma óánægju frá hagsmunaaðilum, velferðarsamtökum og stofnunum. Öryrkjabandalag Íslands hefur kallað þessa fjármálaáætlun Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ávísun á fátækt og eymd, fyrstu fjármálaáætlun með sósíalista við borðsendann. Formaður Verkalýðsfélags Akraness fer mjög hörðum orðum um áætlunina og segir að í henni kristallist veruleikafirring og að skilningsleysi ríkisstjórnarinnar á málefnum lágtekjufólks sé algjört. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna talaði um að fjármálaáætlunin muni auka misskiptinguna, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vg segir þetta, við fyrstu fjármálaáætlun Vg.
Í umsögn Alþýðusambands Íslands, heildarsamtaka verkafólks á Íslandi, segir, með leyfi forseta:
„Undanfarin ár hefur ASÍ ítrekað gagnrýnt þróun ríkisfjármála og verið þeirrar skoðunar að fjármál hins opinbera muni ekki tryggja félagslegan stöðugleika hér á landi. ASÍ hefur í því samhengi áður varað við þensluaukandi aðgerðum hins opinbera, veikingu nauðsynlegra tekjustofna og vanrækslu félagslegra innviða. Það er skoðun ASÍ að með fyrirliggjandi fjármálaáætlun sé haldið áfram á sömu braut, þar sem tekjustofnar séu veiktir frekar sem dragi úr getu stjórnvalda til velferðarumbóta.“
Samtök iðnaðarins hafa lýst þessari fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem miklu áhyggjuefni. Þetta eru hagsmunaaðilar úti í bæ, þetta er ekki stjórnarandstaðan að tala. Stjórnarherrarnir geta haft fyrirvara á því sem við segjum. Þess vegna finnst mér mikilvægt að fara vel yfir umsagnir hagsmunaaðila sem eru að berjast fyrir bættum kjörum og hlusta á þá.
Þá gerir hið sjálfstæða fjármálaráð alvarlegar athugasemdir við áætlunina og bendir m.a. á að sá sveigjanleiki sem boðaður var í fyrri fjármálaáætlun sé nú að mestu leyti horfinn. Fjármálaráðið vekur sérstaklega athygli á að tekjustofnar ríkisins séu veiktir og að dregið sé úr aðhaldi. Þess vegna er þetta vond hagstjórn sem birtist í fjármálaáætlun. Þá segir fjármálaráðið í umsögn sinni að sé fjárfesting í innviðum látin sitja á hakanum sé hætt við að það komi á endanum niður á framleiðni og þar með lífskjörunum, auk sjálfbærni innviða. Tekur Samfylkingin heils hugar undir þau orð. Þá tekur Samfylkingin líka undir áhyggjur Viðskiptaráðs af versnandi samkeppnishæfni Íslands og leggur áherslu á að bæta þurfi bæði framleiðni og hagkvæmni á mörgum sviðum íslensks atvinnulífs.
Þá ætla ég að fara yfir helstu atriðin sem mér fannst gagnrýnisvert. Það er áhugavert að í meirihlutaáliti fjárlaganefndar er alltaf miðað við prósentuhækkun frá 2017. Mér finnst það mjög gagnrýnisvert því að við erum að tala um áætlun frá 2019–2023. Þess vegna er rétt og sanngjarnt að miða við breytingar frá 2018, en meiri hlutinn miðar í nefndaráliti sínu við 2017. Þess vegna fær hann talsvert hærri prósentuhækkanir á málefnasviðunum. Hér er verið að blekkja með tölum með því að velja árinu fyrr. Það skiptir máli að menn átti sig á þeim blekkingaleik. Þetta skiptir máli því að þetta snýst um tölur og við skulum bera saman epli og epli og appelsínur og appelsínur.
Helstu efnisatriðin sem við gagnrýnum í fjármálaáætluninni eru:
1. Það er beinlínis sett þak á þá fjármuni sem eiga að renna til barnabóta og vaxtabóta sem eru ekki krónu hærri en það sem rennur núna til þeirra mikilvægu úrræða velferðarkerfisins. Þetta er sérstaklega sárt því að það eru aðeins nokkrir mánuðir síðan Vinstri græn og þar á meðal fulltrúi Vinstri grænna í fjárlaganefnd, hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, gagnrýndu einmitt þá upphæð sem átti að fara í barnabætur í síðustu fjármálaáætlun en nú stendur hv. þingmaður á bak við fjármálaáætlun með nákvæmlega sömu krónutölu og hún gagnrýndi sem á að renna til barnabóta og vaxtabóta. Ég skil ekki þau sinnaskipti, sérstaklega af því að nú hefur hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tækifæri sem hluti af meiri hlutanum í fjárlaganefnd til að setja meira í barnabætur og vaxtabætur. Það mun ekkert fara á hvolf við það, við setjum 4 milljarða í allar vaxtabætur, 10 milljarða í barnabætur og hér eru við að tala um fjármálaáætlun upp á 5.000 milljarða af því að hún tekur til fimm ára.
Þetta eru vonbrigði og mikið gagnrýnisatriði í garð félaga minna í Vinstri grænum.
2. Landspítalinn telur sig þurfa 87 milljarða til viðbótar samanlagt næstu fimm árin. Var ekki búið að boða og lofa stórsókn í heilbrigðismálum? Landspítalinn segir sjálfur: Þið standið ekki við þau loforð sem þið gáfuð okkur. Auðvitað fagnar maður sérhverri krónu sem fæst í heilbrigðismálin, þeirri aukningu sem þó á sér stað, en Landspítalinn segir: Það vantar 87 milljarða. Þetta er gígantísk tala. Og Landspítalinn segir í umsögn sinni að strax á næsta ári vanti 5,4 milljarða, sem er algjört lágmark til að mæta núverandi þörf. Þetta er engin stórsókn og þetta er Landspítalinn sjálfur að tala.
3. Fjármunirnir sem renna til aldraðra eru fyrst og fremst vegna fjölgunar í þeim hópi. Sem betur fer er öldruðum að fjölga frekar en hitt, fólk er að eldast og á vonandi betra líf. Sú aukning sem rennur til þessa málaflokks er fyrst og fremst kerfislæg, af því að eldri borgurum okkar er að fjölga. Það kom sömuleiðis fram við meðferð þingsins, m.a. frá hæstv. heilbrigðisráðherra, að ekki eru tryggðir nægilegir peningar í rekstur hjúkrunarheimila. Það er ekkert leyndarmál og ekki deilumál.
4. Einungis er gert ráð fyrir 4 milljarða kr. aukningu til öryrkja umfram þá fjármuni sem bætast við vegna fjölgunar í þeim hópi. Þetta stendur skýrum stöfum í umsögn Öryrkjabandalagsins, 4 milljarðar fyrir utan peninga sem renna út af fjölgun öryrkja. Sú upphæð á að dekka alla þá innspýtingu sem stjórnarflokkarnir stæra sig af. Sú upphæð er einungis 1/3 af því sem afnám svokallaðrar krónu á móti krónu getur kostað fyrir utan aðrar kjarabætur sem öryrkjar hafa kallað eftir.
5. Fjármunirnir sem renna til framhaldsskólanna eru einungis það fé sem sparaðist vegna styttingar skólastigsins, en slíku hafði verið lofað á sínum tíma af fyrrverandi ríkisstjórn og er því engin stórsókn í menntamálum eins og ríkisstjórnarflokkarnir hafa sagt. Háskólastigið fær minna en helming af því sem stendur í stjórnarsáttmála og átti að gerast 2022. Verið er að kynna fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir helmingi minna fjármagni en stjórnarsáttmálinn sagði að ætti að nást 2022. Það er engin stórsókn.
Hið sama má segja um samgöngumálin, ríkisstjórnin hefur stært sig af þeim, en framlög til samgöngumála ná ekki einu sinni tíu ára meðaltali þess sem við höfum verið að verja í þann málaflokk. Þau eru svipað hlutfall og fimm ára meðaltalið. Það sér enginn stórsókn nema ráðherrar og þrír stjórnarflokkar. Það bólar ekkert á stórsókn, hvort sem er í heilbrigðismálum, samgöngumálum eða menntamálum.
Það eru fleiri atriði í álitinu sem ég mun fara aðeins yfir á eftir. Flestir umsagnaraðilar sögðu að forsendur áætlunarinnar væru fullkomlega óraunsæjar en forsendurnar skipta auðvitað miklu máli. Forsendurnar byggjast á að hér verði 13 ára samfleytt hagvaxtarskeið. Það hefur aldrei gerst síðan land var numið. Venjuleg hagvaxtarskeið eru þrjú til fimm ár. Af hverju eigum við að trúa því að hér verði samfleytt mikill hagvöxtur í 13 ár? Og af hverju eigum við að gera ráð fyrir því að raungengi krónunnar haldist óbreytt? Það hefur aldrei verið eins sterkt og nú er og fjölmargir sérfræðingar hafa bent okkur á að gengið hefur alltaf fallið við slíkar aðstæður. Gengi krónunnar stjórnar öllu því að ef gengið fellur hefur það áhrif á hagvöxt, skatttekjur, vexti, verðbólgu, einkaneyslu, utanríkisviðskipti o.s.frv. Þetta eru mjög hæpnar forsendur á bak við stóra áætlun.
Ég átta mig á því að erfitt er að spá um gengi gjaldmiðla en að mati Samfylkingarinnar er alveg ljóst að eina spáin sem mun rætast er sú spá að spáin á bak við áætlunina mun ekki rætast. Við skulum hafa það í huga, kæri þingheimur. Að mínu mati og Samfylkingarinnar er þessi fjármálaáætlun pólitísk tálsýn og draumsýn ríkisstjórnarinnar. Það er mjög gagnrýnisvert að byggja fimm ára áætlun á svo veikum grunni og hæpnum forsendum. Í ljósi þess hvernig grunnurinn er uppfyllum við ekki lögin um opinber fjármál, grunngildi laganna um varfærni, stöðugleika og sjálfbærni. Fjármálaáætlun á að uppfylla þau skilyrði. Við gerum það ekki og það blasir við. Þetta var staðfest af sérfræðingi eftir sérfræðing við vinnu nefndarinnar.
Það er gagnrýnisvert að í áætluninni er ekki gert ráð fyrir sviðsmyndagreiningum, hvað þetta breytist o.s.frv., því að augljóslega er hagkerfi okkar það óstöðugt að við þurfum að hafa ítarlegar sviðsmyndagreiningar, fráviksspár og því um líkt.
Fjármálaráðið, sem er sjálfstætt batterí, gagnrýnir boðuð áframhaldandi útgjöld í framhaldi af verulegri útgjaldaaukningu á undanfarandi árum því að á sama tíma er verið að veikja tekjuhliðina og minnka aðhaldið. Hægri menn halda oft að aðhald sé bara að lækka ríkisútgjöld, en það er misskilningur. Aðhald getur bæði verið að lækka ríkisútgjöld en líka að hækka tekjurnar. Of margir hagsmunaaðilar benda á að á þessum tíma hagsveiflunnar sé rökrétt að treysta tekjustofna ríkisins. Við gerum það ekki. Því er hagstjórnin sem birtist í þessari áætlun mjög mikið áhyggjuefni. Í áætluninni er boðuð lækkun skatta, sérstaklega hinna efnameiri, og banka. Það stendur á bls. 15 í fjármálaáætlun og hæstv. fjármálaráðherra staðfesti það í fjölmiðlum í gær. Það stendur til að lækka tekjuskattinn um 1 prósentustig. Það kostar ríkissjóð 14 milljarða. Hvernig skiptast þeir 14 milljarðar? Milljón króna maðurinn fær þrisvar sinnum hærri skattalækkun en sá aðili sem er á lægstu tekjunum. Þetta er flöt lækkun tekjuskatts. Það er ekki sanngjarnt að skipta skattalækkunum á þennan hátt. Er það virkilega forgangsmál Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins að lækka bankaskattinn um 7 milljarða? Er það það sem við eigum að byrja á? Svona er forgangurinn í skattamálum.
Í áætluninni er boðuð lækkun skatta, sérstaklega á hina efnameiri og banka, á sama tíma og útgjöldin eru á vissum sviðum aukin en samt er loforð um innviðauppbygginguna svikið. Þetta þrennt fer mjög illa saman að mati okkar í Samfylkingunni og er mjög sérkennilegt. Á það er bent víða að þessi slæma hagstjórn, sérstaklega Sjálfstæðisflokksins, getur aukið ójöfnuð og getur líka valdið því að hækka þarf vexti. Ef ríkisfjármálin klikka þarf peningastefnan að koma inn og úrræði Seðlabankans er að hækka vexti ef ekki er haldið vel á ríkisfjármálunum. Þess vegna mun íslenskur almenningur súpa seyðið af gjaldþrotastefnu ríkisstjórnarinnar sem byggist á brauðmolakenningunni og skammsýni.
Það er mjög áhugavert að skoða samneysluna. Samneysla er í rauninni aðeins neysla hins opinbera, hluti af landsframleiðslunni. Á næstu fimm árum er gert ráð fyrir að samneyslan minnki lítillega sem hlutfall af landsframleiðslu. Það kemur sérstaklega á óvart því að Vinstri græn tóku þetta sérstaklega upp þegar síðasta fjármálaáætlun var rædd og gagnrýndu það. Þau sögðu að sannarlega væri ástæða til að auka samneysluna því að þörf væri á mikilli opinberri innviðauppbyggingu. Núverandi forsætisráðherra benti á að aukin samneysla væri líka rökrétt því að aldurssamsetning þjóðarinnar væri að breytast. Hún tók það fyrir í ræðu sinni. Nú sitja Vinstri græn hérna bak við mig — og hvað gerist? Samneyslan minnkar á þeirra vakt sem hlutfall af landsframleiðslu.
Þá vekur athygli í fjármálaáætlun að gert er ráð fyrir áframhaldandi aðhaldskröfu á ríkisstofnanir. Í heildina nemur uppsafnað aðhald út tímabilið 56 milljörðum. Árin 2019–2021 er meira að segja aðhaldskrafa á sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir, öldrunarstofnanir og skóla. Vinstri græn gagnrýndu þá aðhaldskröfu á sjúkrahús fyrir korteri síðan. Af hverju að setja aðhaldskröfu á skólana? Svo stendur skýrum stöfum í þeirra eigin fjármálaáætlun að það er aðhaldskrafa á þessar stofnanir.
Þá vekur athygli við lestur fjármálaáætlunar að lítið er tekið á misskiptingunni í samfélaginu. Því er alltaf slengt í andlitið á okkur sem gagnrýnum misskiptinguna að Gini-stuðullinn sé þokkalega jákvæður gagnvart Íslandi. Gini-stuðullinn mælir tekjujöfnuð. Við erum að tala um eignaójöfnuð. Það er tvennt ólíkt. Við erum að tala um eignaójöfnuð og Gini-stuðullinn tekur ekki til hans. Þegar litið er til eignaójöfnuðar er hann hvað mestur á Íslandi af Evrópuþjóðunum. Hann er meira að segja hár á Norðurlöndum.
Núna eiga fimm ríkustu prósent Íslendinga næstum því jafn mikið af hreinum eignum landsmanna og 95 prósentin. Eitt prósentið, minnkum aðeins hópinn, af ríkustu Íslendingunum á meiri eignir en 80% Íslendinga eiga. Sú þróun heldur áfram því að árið 2016 tóku ríkustu tíu prósentin tæpan helming allra hreinna eigna til sín. BSRB hefur bent á að skattbyrði tekjulægstu hópanna hafi aukist langmest, samanborið við aðra hópa. Hér er ekki tekið á því og ef eitthvað er er farið í hina áttina, því að skattstefnan er svo vitlaus. Hún er svo ósanngjörn að það er fókuserað á tekjuskattslækkun frekar en eitthvað annað. Ég vona að stjórnarflokkarnir endurskoði þau fyrirheit.
Mér sýndist hæstv. ráðherra fjármála staðfesta að svo er ekki, bara í gær.
Enn þá eru veiðigjöldin einungis 1% af tekjum ríkisins. Við höfum aldeilis talað um veiðigjöld og auðlindagjöld í þessum sal. Ein meginauðlind íslensku þjóðarinnar er fiskstofnarnir í sjónum. Hvaða eigandi myndi sætta sig við að fá um 1% af sínum tekjum frá meginauðlind sinni? Íslenskur almenningur er látinn gera það. Fyrir tveimur, þremur árum borguðu lax- og silungsveiðimenn, þeir sem veiða í laxveiðiám, um helming, um 2,5 milljarða, á sama tíma og útgerðarmenn greiddu 5 milljarða. Þið sjáið bullið hérna, að útgerðarmenn greiði einungis um helmingi meira en lax- og silungsveiðimenn gerðu fyrir nokkrum árum. Og aftur er verið að koma inn á þingið frekari gjöfum til skattakónga.
Alvarlegustu pólitísku tíðindin sem ég hef flaggað hér ítrekað eru að ekki er gert ráð fyrir neinni viðbót í barnabótakerfið. Ríkisstjórnarflokkarnir eru búnir að setja þak á barnabæturnar og hjón með eitt barn fá engar barnabætur séu báðir aðilarnir með 470 þús. kr. í tekjur eða meira. Það er ekki hátekjufólk sem hefur 470 þús. kr. í mánaðarlaun en kerfið er orðið þannig að það fær engar barnabætur, enda er 1/4 dottinn úr barnabótakerfinu. Af hverju treystum við ekki það kerfi? Það er fullt af fólki sem þarf að reiða sig á barnabætur og þetta er ekki stóri pósturinn í ríkisfjármálunum.
Hið sama má segja um vaxtabæturnar. Helmingurinn af þeim sem fengu vaxtabætur síðast þegar Samfylkingin var í ríkisstjórn er dottinn út úr kerfi út af skerðingum. Mig langar að rifja upp að síðast þegar Samfylkingin var í ríkisstjórn settum við 100 milljarða kr. í barnabætur og vaxtabætur á kjörtímabilinu. Samfylkingin setti ásamt samstarfsflokkum sínum þá 100 milljarða kr. í barnabætur og vaxtabætur. Hér kristallast grundvallarskoðanamunur stjórnmálaflokkanna.
Það er gagnrýnisvert að við sjáum ekki í fjármálaáætluninni gert ráð fyrir fjármagni í lengra fæðingarorlof, þótt verið sé að breyta upphæðinni. Það stendur í stjórnarsáttmálanum að lengja eigi fæðingarorlofið en þá þarf að koma með pening inn í það. Síðan á að lækka þá upphæð sem rennur í almennar leiguíbúðir um helming. Finnst þjóðinni það tímabært? Er ástandið á húsnæðismarkaðnum þannig að ríkið geti sagt: Já, við ætlum að setja helmingi minni pening í það en áður? Ég velti oft fyrir mér í hvaða heimi ríkisstjórnarflokkarnir, ráðherrarnir og þingmennirnir núna, sem kvitta upp á allt hjá ráðherrunum, vilja lifa í.
Það hefur lengi verið kallað eftir frekara fjármagni til öryrkja og aldraðra. Ég er búinn að nefna að þær viðbætur sem um ræðir duga skammt. Þær eru fyrst og fremst vegna fjölgunar í þeim hópi en duga skammt til að mæta öðrum þáttum.
Samiðn segir, með leyfi forseta:
„Aukin útgjöld til ellilífeyris á tímabilinu má fyrst og fremst rekja til fjölgunar ellilífeyrisþega.“
Allt í lagi, þá vita þeir eldri borgarar sem eru að horfa á þetta að sú aukning í fjármunum sem er í fjármálaáætlun er fyrst og fremst vegna fjölgunar í hópi þeirra. Það er ekki komið með neina innspýtingu eða uppbyggingu eða fjárfestingu eða verið að lyfta kjörum með einum eða öðrum hætti, eins og var kosið um og allir stjórnmálaflokkar sögðu á fundi eftir fund að þeir myndu gera.
Ég nefndi að framhaldsskólastigið fær nánast sömu krónutölu næstu fimm árin. Þó að sú krónutala sé á hvern nemanda meiri en nú er, vegna þess að búið er að taka heilt ár frá framhaldsskólanum, er þetta endurunnið loforð. Það stóð alltaf til að leyfa styttingarpeningunum að vera í framhaldsskólakerfinu. Á það benti Kennarasambandið við umfjöllun nefndarinnar um fjármálaáætlunina.
Þá er það háskólastigið. Þetta skiptir máli því að markmiðið er mælanlegt. Það átti að ná OECD-markmiðinu og það kostar 6,7 milljarða. Samkvæmt stjórnarsáttmála átti að ná því fyrir 2020. Hverju gerir fjármálaáætlun ráð fyrir? Minna en helmingi af þeirri upphæð til 2023. Og takið eftir einu, þarna inni er fjármagnið í uppbyggingu á Húsi íslenskunnar og, merkilegt nokk, því að ég hef gaman af að rifja upp, það var einungis í fyrra sem núverandi forsætisráðherra lýsti yfir áhyggjum sínum af að hluti af þeim auknu fjármunum sem rynni til háskólanna væri í raun stofnkostnaður. Hún sagði að það væri ekki til þess að bæta menntun í landinu. Sú heildartala sem stjórnarflokkarnir stæra sig af að setja í málaflokkinn — þeir peningar rétt nægja í þetta húsnæði.
Förum aðeins yfir heilbrigðismálin. Þau eru sá málaflokkur sem langflestir kjósendur leggja hvað mesta áherslu á. Ég skal vera ærlegur. Þegar fjármálaáætlun kom hélt ég jafnvel að ríkisstjórnin ætlaði sér að standa við loforðin með mjög öflugri innspýtingu í heilbrigðismálin. Þannig var það kynnt. Ég get nokkurn veginn fullyrt að við vorum hissa í fjárlaganefnd þegar forsvarsmenn Landspítalans komu til okkar og sögðu að markmiðin með áætluninni væru ekki fjármögnuð og að í raun vantaði 87 milljarða kr. Við vorum öll hissa. Hér er ýmislegt að. Ef við skiptum því á fimm ár vantar yfir 17 milljarða, sem er ekki lítil upphæð. Bara á næsta ári þarf um 5,4 milljarða, sem eru algjört lágmark. Þetta kemur frá Landspítalanum. Það getur vel verið að stjórnarflokkarnir taki málflutningi mínum með fyrirvara, líti á mig sem svartsýnan stjórnarandstæðing, en þetta er tekið beint úr umsögn Landspítalans. Þetta er mjög sérkennilegt.
Fjármálaáætlun gerði líka ráð fyrir stórsókn til samgöngumála, eins og ég gat aðeins um í inngangi mínum. Það voru svo margar stórsóknir að ég veit ekki hversu margar var talað um. Það átti að vera stórsókn á öllum sviðum og enn hafa hagsmunaaðilar og þjóðin ekki séð neina stórsókn. Ég veit að það eru 5.000 milljarðar þarna sem fara í eitthvað, ég átta mig alveg á því, en það er verið að blekkja fólk til að halda að hér sé stórsókn eftir stórsókn eftir stórsókn þegar þeir peningar sem þó renna til þessara mikilvægu málaflokka annars vegar ná ekki að mæta þeirri þörf og hins vegar eru í engu samræmi við það sem búið var að lofa.
Förum aðeins yfir skattstefnuna. Margir sem komu fyrir fjárlaganefnd sögðu að skattstefnan væri illa ígrunduð. Ég tek undir það. Uppsöfnuð áhrif skattbreytinga fjármálaáætlunarinnar eru um 24,5 milljarðar. Það eru miklir peningar og við í Samfylkingunni teljum að við getum ráðstafað þeim betur. Ég gat áðan um 1 prósentustigs lækkun á tekjuskatti, sumir þingmenn stjórnarliðsins hafa breytt aðeins málflutningi sínum og tala um ígildi. Það stendur fremst í fjármálaáætlun að lækka eigi tekjuskatt um 1 prósentustig. Ég er meira að segja með glæru frá fjármálaráðuneytinu þar sem segir beinum orðum:
„Gert er ráð fyrir 1 prósentustigs lækkun á skatthlutfalli neðra þreps.“
Þetta er ekkert óskýrt. Það er í góðu lagi ef því er breytt og ég vona að því verði breytt en það ætti ekki að halda öðru fram. Þetta stendur í áætlun ríkisstjórnarinnar og mér sýndist hæstv. fjármálaráðherra staðfesta að enn stæði til að lækka tekjuskattinn flatt.
Svo er það bankaskatturinn, 7 milljarðar. Bankaskattinn mun einhvern tímann daga uppi. Ég átta mig alveg á því en ég velti fyrir mér hvort þetta sé tíminn til að lækka skatt á banka um 7 milljarða. Ég veit að þetta er sérkennilegur skattur en er þetta réttinn tíminn þegar það vantar þá peninga sem þjóðin kallar eftir í framhaldsskóla, háskóla, spítalana, til öryrkja, eldri borgara o.s.frv.?
Samfylkingin leggur fram við þessa umræðu tíu breytingartillögur. Við viljum breyta fjármálaáætlun. Auðvitað leggjum við ekki fram fullmótaða fjármálaáætlun en við leggjum fram tíu breytingartillögur. Þær kosta um 23 milljarða og við ætlum að fjármagna það á einfaldan hátt. 14 milljarðar eiga að fara í tekjuskattslækkunina, þá flötu, 7 milljarðar eiga að fara í bankaskattinn og svo viljum við afnema samsköttun skattþrepa sem gefur okkur 2,7 milljarða. BSRB, ASÍ og fleiri hafa kallað þetta aðgerðir sem vinna gegn jafnrétti en 93% af samsköttun renna til tekjuhárra karlmanna, svo ég rifji það upp.
Breytingartillögur Samfylkingarinnar eru að fullu leyti fjármagnaðar. Svo erum við með fabúleringu í nefndaráliti okkar, það er hægt að auka tekjustofna; aukin auðlindagjöld, auknar tekjur af ferðamönnum, kolefnisgjöldin, fjármagnstekjuskatturinn, auðlegðarskatturinn. Það er hægt að fara ýmsar leiðir án þess að setja allt á hvolf til að tryggja tekjustofna ríkisins, alveg eins og fjármálaráð kallaði eftir.
Það vantar aðeins pólitískan vilja. Hann var fyrir hendi hjá Vinstri grænum fyrir sex mánuðum en svo hvarf hann við að fá þrjá ráðherrastóla. Hversu dýrir þurfa þrír ráðherrastólar eiginlega að verða? Ég átta mig ekki á því. (Gripið fram í: 2%.) Já, ég átta mig alveg (Gripið fram í.) — ég skal vera alveg sanngjarn, menn þurfa að gera málamiðlanir, ég átta mig á því og veit að Vinstri græn og Sjálfstæðismenn þurftu að gera málamiðlanir, en fyrr má nú vera. Þetta er svo aumt að það tekur engu tali. Eins og barnabætur, það er ekki svo mikið. Af hverju ekki bara Landspítalinn og barnabætur? Það tvennt hefði gert gæfumuninn fyrir margt fólk, en það eru engar breytingar, status quo heldur einungis kvittað upp á það sem hæstv. fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson segir. Það er bara stimplað. Ráðuneytið á Arnarhvoli vill hafa þetta svona, þingmenn í þessum sal, ekkert mál, stimpla þetta. Það er með ólíkindum því að það þarf ekki að vera svona. Ég átta mig á að ríkissjóður getur ekki (Forseti hringir.) gert allt fyrir alla, en hann getur gert talsvert meira með sanngjarnari skattstefnu og réttlátari innviðauppbyggingu.
Núverandi forsætisráðherra sagði í fyrra: „Stjórnvöld eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlæti.“ Því miður staðfestir fjármálaáætlun forsætisráðherra að stjórnvöld eru einmitt að gera það.