fjármálaáætlun 2019--2023.
Mér finnst við í fyrsta lagi þurfa að átta okkur á því hver tilgangur skattkerfisins er. Það er annars vegar að afla tekna fyrir ríkissjóð og hins vegar að auka jöfnuð. Við erum kannski ósammála þeirri nálgun. Sumir, og ég held kannski hv. þingmaður, líta svo á að skattkerfið hafi bara einn tilgang, að afla ríkissjóði tekna. Ég er ósammála því. Þrepin mega vera fleiri, ég nefni kannski þrjú, fjögur. Hvar tekjumörkin eiga að vera nákvæmlega get ég ekki sagt hér og nú, í einnar mínútu andsvari, langt í frá(Gripið fram í.) en engu að síður fleiri þrep. Við þurfum að huga að persónuafslættinum, hann hefur setið eftir, og ég held að hv. þingmaður sé kannski sammála mér hvað það varðar. En hann hlýtur að vera sammála mér í því að við hljótum að geta dreift þessum 14 milljörðum betur en raun ber vitni.
En af því að hv. þingmaður kallar eftir nákvæmri skattstefnu frá mér þá kalla ég aftur til baka: (ÓBK: Svaraðu andsvarinu.) Hver er skattstefnan í fjármálaáætluninni? Ég er ekki að leggja fram fjármálaáætlun. Ætlið þið að lækka tekjuskatt um eitt prósentustig eða ætlið þið að lækka tekjuskattinn um ígildi eins prósentustigs? (Gripið fram í.) Þið talið þvert á hvort annað. (BjG: Það er ekki búið að ákveða það, hv. þingmaður.) Það er ekki búið að ákveða það. Af hverju ekki? Fjármálaráðherra sagði í gær (Gripið fram í.) að þetta væri eins prósentustigs flöt lækkun, stendur á bls. 15 í fjármálaáætlun ykkar. Svo finnst mér þið vera að hlaupa frá því. (Gripið fram í.) Er ekki lágmark að þið séuð nákvæm í áætlun ykkar? Er það ekki fyrsta skrefið?
Þið sjáið að Vinstri grænir og Sjálfstæðismenn tala tveim tungum hvað þetta varðar. (Gripið fram í.) Þetta skiptir öllu máli, þetta er langstærsta skattbreytingin ykkar. Ég veit ekki enn þá hvort þið ætlið í flata lækkun eða ekki. Ætlið þið að breyta persónuafslættinum eða ætlið þið ekki að gera það? Svarið fyrst þeirri grundvallarspurningu áður en ég fer að segja hvort skattþrepin eigi að vera 42%, 46% eða 48%. En ég er alveg til í þá umræðu. (Gripið fram í: Þú situr fyrir svörum.) Ég var að svara. (Gripið fram í.)… svörin sem þér þóknast? (Gripið fram í: Andsvar við þig.)