148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[14:51]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er merkilegt að hv. þingmaður treystir sér ekki til að svara. En allt í lagi, ég ætla bara að rifja það upp að árið 2003 (Gripið fram í.) gagnrýndi hv. þingmaður Sjálfstæðisflokkinn fyrir það að hætta við að fella niður hátekjuskattinn svokallaðan, 5%. 5% af tekjum sem þá voru um 350 þús. kr., sem er ígildi u.þ.b. 700 þús kr. í dag. Þá var tekjuskattsþrepið 38,55% og síðan 5% þar ofan á. Núna er hæsta þrep u.þ.b. 46%, 46,24%, og miðað er við tæplega 894 þús. kr. Hann taldi að 700 þús. kr. sem bæru hátekjuskatt, sérstakan tekjuskatt, álag, 5%, væri of hár skattur. Og hann segir hér í þingræðu (Forseti hringir.) að afstaða Samfylkingarinnar sé mjög skýr, (Forseti hringir.) hún sé á móti hátekjuskattinum. Það er engin furða þótt ég vilji fá að vita, hæstv. forseti: Hver er stefna Samfylkingarinnar og hver er stefna (Forseti hringir.) hv. þingmanns þegar kemur að tekjuskatti einstaklinga? (Forseti hringir.) Mér finnst skrýtið og sérkennilegt að þingmaðurinn víkur sér undan því að svara með beinum hætti.

(Forseti (GBr): Forseti beinir því til hv. þingmanna að virða tímamörk.)