148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[14:53]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst frekar ósanngjarnt að ætlast til þess að ég geti á mínútu eða í tveggja mínútna andsvari farið að nefna nákvæma tölu. Ég skal bara vera ærlegur með það að ég er ekki tilbúinn til að nefna nákvæma tölu um það hver skattþrepin eiga að vera. Ég er hlynntur hátekjuskatti, ég skal reyna að vera eins skýr og ég get. Hátekjuskattur núna, efra þrepið, upp á rúmlega 47%, nær til u.þ.b. 5–10% launþega. Við sjáum hins vegar … (Gripið fram í.) Já. Ég vil ekki hafa hátekjuskatt sem virkar í raun eins og millitekjuskattur, þar erum við sammála, hljótum að vera sammála. En hér sjáum við engu að síður fólk með mjög há laun. Við sjáum fólk með kannski 2 milljónir á viku. Þetta er hópur sem við getum skattlagt meira. Ég skal vera eins skýr og ég get: Þennan hóp eigum við að geta skattlagt meira, sérstaklega í ljósi þess að okkur vantar peninga í þá innviði sem flokkur hv. þingmanns hefur sömuleiðis verið að kalla eftir. Við þurfum líka að huga að persónuafslættinum, skattleysismörkunum, og þá hefur hv. þingmaður skrifað fjölmargar greinar, sem ég fagna, í Morgunblaðið um hvernig megi hugsanlega endurskoða persónuafsláttarkerfið. (Forseti hringir.) Tökum þá umræðu. En kjarninn er sá (Forseti hringir.) að við verðum að geta skattlagt hina auðugu meira því að það vantar meira í samneysluna. Við hljótum að geta komið okkur saman um það með einum eða öðrum hætti þótt við séum ekki sammála um allt í pólitík.