148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[14:55]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann fer mikinn eins og gjarnan þegar hann kemur hingað í ræðustól og er það vel. Það er alltaf gaman að hlusta á þá sem eru heitir og brenna fyrir því sem þeir eru að segja og áhugavert að hlusta á það sem hv. þingmaður hefur fram að færa þó að það sé svo sem ekkert nýtt. Við erum búin að heyra það í þau skipti sem hann hefur komið í pontu Alþingis í vetur.

Hv. þingmaður leggur fram tillögu upp á tæplega 3%, hækkun, að mér sýnist. Hann gagnrýndi okkur mjög í prósentuvís þegar við lögðum fram áætlun okkar. Gott og vel. Ég er ósammála honum um að það að vera með tæplega 180 milljarða í fjárfestingu í heilbrigðismál sé ekki veruleg sókn þótt við getum alltaf gert betur. Forsvarsmenn Landspítalans sögðu á fundi okkar í fjárlaganefnd að ekki væri um að ræða óskalista heldur væru þeir að gera tilraun til að meta þau markmið sem kæmu fram í fjármálaáætluninni. Það er ekki heilög vísindi frekar en annað. Það segir ýmislegt um það að við þurfum að gera hana enn gegnsærri.

En að tala um að hækkun til málefnasviða, t.d. til málefnasviða heilbrigðisráðherra, sem er um 19% á tímabilinu, sé ekki eitthvað, það er ósanngjörn umfjöllun, hv. þingmaður. Við erum að tala um tæplega 9 milljarða í sjúkrahúsþjónustu. Og þetta er upphaf, við getum ekki gert allt í einu. Við erum líka að tala um að þeir hlutir sem gerðir verða, greiðsluþátttaka sem minnkar á tímabilinu og annað slíkt, koma auðvitað öllum til góða sem á þurfa að halda.

Mig langaði (Forseti hringir.) að spyrja hv. þingmann, af því að hér eru lagðir til fjármunir, af því að við höfum verið gagnrýnd mikið fyrir húsnæðismálin: Tillaga (Forseti hringir.) Samfylkingarinnar, sem liggur fyrir þinginu, kostar 25–30 milljarða að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga. Af hverju lögðuð þið það ekki til?