148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[14:57]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður segir að það sé ekkert nýtt í málflutningi mínum og það er rétt, það er ekkert nýtt í honum. Þetta er sami málflutningur og ég var með þegar við afgreiddum fjárlögin. Þetta er sami málflutningur og ég var með þegar við afgreiddum fjármálastefnuna. Og þetta er sami málflutningur og ég er með nú þegar við erum að tala um fjármálaáætlun.

Þessi fjármálaáætlun, stefna og fjárlög, er svo þvert á það sem Vinstri grænir sögðu rétt fyrir kosningar, m.a. hvað varðar barnabætur. Varðandi Landspítalann þá fagna ég auðvitað sérhverri krónu sem fer í heilbrigðismál. Ég er ekki að segja að engir peningar séu settir í þann málaflokk, ég er hins vegar að vísa í það sem forsvarsmenn Landspítalans segja. Ég skal bara nefna það hér. Fjárveitingar til reksturs Landspítalans 2018 eru 2 milljörðum lægri en þær voru 2008, á föstu verðlagi. Hv. þingmaður þarf ekkert að trúa mér, þetta segja forsvarsmenn Landspítalans. Þeir segja að það vanti á næstu fimm árum um 87 milljarða uppsafnað. Ef hv. þingmanni finnst málflutningur minn ósanngjarn finnst henni málflutningur frá Landspítalanum ósanngjarn. Þetta er frá Landspítalanum, þetta er mat þeirra.

Stjórnarþingmenn stæra sig af stórsókn en ef það vantar 87 milljarða er það engin stórsókn. En ég skal vera sanngjarn. Eins og ég gat um í upphafi hélt ég að ríkisstjórnin væri að standa við orð sín um stórsókn í heilbrigðismálum. Þess vegna var ég mjög hissa að sjá svona háa tölu. En ég hef ekki séð hv. stjórnarþingmenn hrekja þá tölu. Landspítalinn segir að það vanti 5,4 milljarða sem algjört lágmark. Af hverju sameinumst við ekki um eitt? Byrjum á því, ég veit að við getum ekki gert allt fyrir alla. Af hverju er hv. þingmaður ekki tilbúinn til að samþykkja tillögu okkar um 5,4 milljarða til Landspítalans, til að ná lágmarkinu? Ég er ekki að biðja um 87 milljarða. Af hverju byrjum við ekki bara á 5,4 milljörðum? Er hv. þingmaður til í það? Ég veit að hún er sammála mér í hjarta sínu. Nú hefur hún valdið, hún er í meiri hlutanum. Sameinumst öll um að setja 5,4 milljarða í Landspítalann svo að hann fái a.m.k. það lágmark sem kallað var eftir. (Forseti hringir.) Þá er ég ekki einu sinni byrjaður á að tala um stórsókn, byrjum á lágmarkinu.