148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[15:01]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég sagði sérstaklega að við gætum ekki gert allt fyrir alla núna. Ég átta mig alveg á því og ég sagði það. Ég átta mig á því að ríkisstjórnin þurfti að gera málamiðlanir.

Við erum með breytingartillögu upp á 23 milljarða. Fyrst þær eru svo aumingjalegar og litlar, af hverju er þá ekki hægt að samþykkja þær? Af hverjum getum við ekki verið sammála um að stíga þau skref (Gripið fram í.) að sinna alla vega lágmarkinu. Ég er ekki að boða það hér að Landspítalinn fái 87 milljarða, það væri óábyrgt. Ég er að boða að við getum sett 5,4 milljarða í Landspítalann, 3 milljarða í barnabætur … (BjG: Af hverju ekki 7,6?) — við getum byrjað á þessu. Ef þetta er svona lítið og aumingjalegt verður auðvelt fyrir hv. þingmann að ýta á já-hnappinn, fyrst þetta er svona ofsalega lítið, þetta eru 23 milljarðar til viðbótar við ykkar viðbót, sem ríkisstjórnin stærir sig af. Af hverju byrjum við ekki á því? Af hverju byrjum við ekki á því fyrst þetta skiptir engu máli? Þeir fjármunir, 23 milljarðar, skipta máli. Hver einasti milljarður skiptir auðvitað máli.

Við erum að sjálfsögðu ekki að leggja fram fullmótaða fjármálaáætlun, við erum að gagnrýna helstu punktana, (Forseti hringir.) eins og hv. þingmaður gerði sjálf þegar hún gagnrýndi fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar. Byrjum einhvers staðar og verum sammála um það sem við erum sammála um og verum samferða.