148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[15:02]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni kærlega fyrir ræðuna og innlegg um nefndarálit 2. minni hluta við ríkisfjármálaáætlun. Hv. þingmaður fór yfir helstu atriði í nefndaráliti af miklum eldmóði, það verður að segjast. Ég get um margt verið sammála hv. þingmanni þegar kemur að félagslegum umbótum. Þegar hv. þingmaður talar hins vegar um blekkingar verð ég að staldra við. Hv. þingmaður nefndi í því samhengi að í vinnu nefndarinnar væri verið að bera saman við árið 2017; það er bara til þess að fá samanburð í báðar áttir, það er augljóst. Við eigum ekki að tala á þessum nótum, ég verð að koma því að. Ég skil alveg pólitísku sjónarmiðin.

Hv. þingmaður ræðir jafnframt mikið um að meiri hlutinn geri ekki tillögu að breytingum. Það má vel vera að þetta sé raunhæf áætlun; hún sé raunhæf að því leyti að hér birtast áform ríkisstjórnar úr stjórnarsáttmála um innviðauppbyggingu sem talað er um og búið að festa í þann sáttmála. Við hljótum að meta það út frá því. Ef við hefðum verið ósátt við það hefðum við mögulega gert breytingar.

Við getum bara sagt að þetta sé raunhæf áætlun sem skila á til næstu fimm ára því sem lagt var upp með.