fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Já, ég fer kannski á flug hérna því að ég veit alveg að margir stjórnarþingmenn eru mér sammála. Þess vegna verð ég svolítið frústreraður yfir því að við sýnum það ekki bara í verki. Þetta snýst ekki um pólitískt kredit, ekki um hægri eða vinstri. Af hverju stígum við ekki bara þau skref sem við erum sammála um?
Ég ímynda mér að hv. þingmaður hefði viljað sjá meiri peninga í háskólastigið. Vitið þið hvernig ég veit það? Vegna þess að hann skrifaði upp á stjórnarsáttmála þar sem gert var ráð fyrir helmingi meiri fjármunum á háskólastigið. Nú stendur hann að fjármálaáætlun sem setur bara helming þeirra fjármuna þar inn. Af hverju voru þeir fjármunir, sem voru markmið stjórnarsáttmálans, sem er nú bara sex mánaða gamall, ekki settir þar inn? Ég veit að hv. þingmaður hefði getað gert það án þess að allt færi í kaldakol. En ég veit að frekja ráðherranna og embættismannanna hefur náð hér í gegn og það finnst mér sorglegt.
Varðandi blekkingaleikinn: Ef við skoðum nefndarálit meiri hlutans er aftast í hverju einasta málefnasviði alltaf verið að tala um aukningu í málefnasviðið frá árinu 2017 til 2023, um X%, svona marga milljarða. Af hverju er miðað við 2017? Það á að miða við 2018. Áætlunin er fyrir 2019–2023. Það finnst mér vera blekking. Hv. þingmaður fær hærri tölur ef miðað er við 2017 en ekki 2018. (Gripið fram í.) Það finnst mér vera — ég skal ekki kalla það blekkingaleik, ég skal draga það til baka. Verið er að slá ryki í augun á fólki. Það finnst mér gagnrýnisvert þó að þetta sé ekki risavaxið mál. Fólk getur þá bara reiknað töluna frá 2018, en mér finnst það ekki rétt framsetning.
Ég get borið það saman við fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar. Við sjáum mun á afkomunni í þessari fjármálaáætlun og fjármálaáætluninni sem Viðreisn lagði fram, það munar 0,2% af landsframleiðslu. Það var áætlun sem Vinstri græn og Framsóknarflokkur gagnrýndu að væri metnaðarlítil og gegnsýrð af íhaldssemi og hægri stefnu — 0,2% breyting á afkomu þegar litið er til 2018.