148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[15:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni svarið. Ég vil líka benda á varðandi talnablekkingaumræðuna að við erum með í fylgiskjali samanburð sem nær til 2010. Við tökum samanburð í báðar áttir þegar okkur þykir það eiga við. Það hefur upplýsingagildi, svo einfalt er það. Mér finnst of langt gengið þegar verið er að tengja það við blekkingar. Svo er ekki.

Ég vil líka benda á að fjármálaáætlun er endurskoðuð árlega. Það eru fjölmargar ábendingar, bæði frá meiri hluta og minni hluta og svo sameiginlega frá nefndinni, sem hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson átti hugmyndina að, sem fengu umræðu í nefndinni og birtast í öllum álitsgerðum meiri hluta og minni hluta. Fyrir það ber að þakka.

Ég ætla að ljúka þessari ræðu á þeim jákvæðu nótum.