fjármálaáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir áliti 4. minni hluta fjárlaganefndar um fjármálaáætlun 2019–2023.
Lög nr. 123/2015, um opinber fjármál, marka vatnaskil að því leyti að með þeim er fjárhagsbúskap ríkissjóðs sett ný umgjörð. Bera lögin með sér hve vel var vandað til þeirra. Mikilvægt er að þess sé gætt í hvívetna að fara að lögunum eins og til þeirra var stofnað til að þau nái markmiðum sínum um að stuðla að góðri hagstjórn og styrkri og ábyrgri stjórn opinberra fjármála. Fjármálaáætlunin skal byggð á fjármálastefnu sem Alþingi samþykkti sem þingsályktun 22. mars sl.
Fjármálastefna er sett fram í byrjun kjörtímabils og er ekki endurskoðuð nema brýna nauðsyn beri til, en fjármálaáætlun er hins vegar endurskoðuð árlega, að vori, og gildir til fimm ára í senn.
Enginn þarf að fara í grafgötur um hina miklu ábyrgð ráðherra samkvæmt hinu nýja skipulagi sem lögfest hefur verið. Nú ber ráðherra að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að útgjöld fari fram úr fjárheimildum og grípa tímanlega til allra ráða til að koma í veg fyrir hallarekstur. Framvegis flytjist hallareksturinn til næsta árs. Þá ber að taka á honum og ekki verður lengur unnt að ganga út frá því að halli verði felldur niður, enda ótækt í rekstrarlegu tilliti. Með þeim hætti eykst agi og fagmennska í rekstri ríkisins sem stuðlar að því að lögin nái markmiðum sínum og verður að telja mikið framfaraskref.
Vegna nýliðinna atburða verður ekki hjá því komist að gera að umræðuefni umgengni ríkisstjórnarinnar við lögin um opinber fjármál eins og hún birtist í því hvernig ríkisstjórnin hyggst hagnýta sér fé sem nemur um 4 milljörðum kr. úr hinum almenna varasjóði Hér er um að ræða að taka fé úr hinum almenna varasjóði til vegaframkvæmda, sem út af fyrir sig eru þarfar og brýnar, í stað þess að gera ráð fyrir fé til þessara framkvæmda í fjárlögum eða fjármálaáætlun eins og ætti að gera að réttu lagi.
Ráðstöfun fjár úr hinum almenna varasjóði er bundin ströngum skilyrðum sem talin eru upp í 24. gr. laga um opinber fjármál. Þau skilyrði ber að túlka þröngt eftir því sem segir í greinargerð með frumvarpi til laga um opinber fjármál. Varasjóði er ætlað að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg, óhjákvæmileg og ekki er unnt að bregðast við með öðrum hætti samkvæmt lögunum. Með notkun fjár úr þessum sjóði til vegaframkvæmda er teflt á tæpasta vað svo að ekki sé meira sagt. Naumast verður því haldið fram að ófyrirsjáanlegt sé að lélegir vegir komi illa undan vetri og frosthörkum.
Ráðstöfun fjár úr hinum almenna varasjóði á vafasömum forsendum jaðrar við misbeitingu á 24. gr. laganna og skapar hættulegt fordæmi sem í raun kann að fela í sér að ráðherra telji sér frjálst að nýta fé sjóðsins að geðþótta. Slík framkvæmd gengur þvert á lögin og grefur undan anda þeirra og markmiðum. Kemur á óvart að ríkisstjórnin skuli umgangast 24. gr. laganna með þeim hætti sem við blasir enda má telja það eina af skyldum stjórnvalda á vettvangi fjármála- og efnahagsmála að standa vörð um lög um opinber fjármál sem hornstein í lagalegri umgjörð um ríkisbúskapinn.
Fjárlaganefnd hefur óskað umsagnar Ríkisendurskoðunar um þá ákvörðun að verja fjórum milljörðum til vegamála. Komist Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu að þessi framkvæmd sé í samræmi við 24. gr. laganna verður ekki annað séð en að stjórnvöldum sé frjálst að nýta sér fé úr sjóðnum að vild. Skilyrði laganna, sem áður voru talin ströng, væru þá í fullkomnu uppnámi enda a.m.k. einu þeirra, ófyrirsjáanleikanum, ekki fullnægt að því er best verður séð, frú forseti.
Ráðherra tekur ákvörðun um meðferð hins almenna varasjóðs og tilkynnir fjárlaganefnd. Þá vaknar sú spurning hvað ákvæði laganna merkja í þessu sambandi. Að mínum dómi, kannski væri réttara að segja að dómi 4. minni hluta, verður ekki litið á ákvæði laganna í þessu efni á þann hátt að því sé ætlað að vera lagagrundvöllur fyrir eins konar blaðamannafundi þar sem ríkisstjórnin fræðir fjárlaganefnd um þegar tekna ákvörðun. Tilgangurinn með hinum lögboðnu samskiptum ráðherra og fjárlaganefndar hlýtur að vera sá að ráðherra kanni vilja Alþingis til áforma ríkisstjórnar um ráðstöfun fjár skv. 24. gr. laganna enda fer Alþingi með fjárveitingavaldið. Fundur með fjárlaganefnd hlýtur í eðli sínu að fela í sér könnun á vilja Alþingis, sem fer með fjárstjórnarvaldið, til að fallast á áform ríkisstjórnar og rökstuðning fyrir því að áformin uppfylli öll skilyrði 24. gr. laganna.
Álit fjármálaráðs vegur afar þungt í umfjöllun um fjármálaáætlun enda er því falið það verkefni, fjármálaráði, að lögum að skila slíku áliti. Ekki verður annað séð af umfjöllun fjármálaráðs um reikningsskilastaðla sem liggja til grundvallar fjármálaáætlun en stjórnvöldum sé allþröngur stakkur skorinn komi til þess að vilji eða þörf sé á að auka útgjöld til einstakra málaflokka. Á mæltu máli sýnist sem útgjöld verði trauðlega aukin nema skattar verði hækkaðir á móti. Þetta atriði virðist geta þrengt all mjög að stjórnvöldum í ljósi þess að afkoma ríkissjóðs er í járnum og allverulega sýnist hafa fjarað undan efnahagslegum forsendum fjármálaáætlunar síðan hún var sett fram.
Í fjármálaáætlun kemur fram að ekki sé hægt að gera ráð fyrir að óreglulegar greiðslur komi inn á tekjuhlið í sama mæli og verið hefur á undanförnum árum, því þarf svigrúm til útgjalda í auknum mæli að skapast af öflun tekna í hefðbundnum rekstri ríkissjóðs eins og fjármálaráð kemst að orði. Í framhaldi þessa er tekið fram af hálfu fjármálaráðs að á sama tíma er tekjuhliðin veikt. Þegar á þetta er litið virðist sem grunngildið varfærni hafi ekki vegið sérlega þungt þegar megindrættir í fjármálaáætlun voru lagðir.
Skortur á varfærni verður enn sýnilegri í ljósi ábendingar fjármálaráðs að vegna áforma um aukningu rammasettra útgjalda og skattalækkana á sama tíma er gert ráð fyrir versnandi afkomu ríkissjóðs þegar líður á áætlunina. Markmið fjármálaáætlunar um afkomu ríkissjóðs er nálægt gólfi stefnunnar á öllu tímabili áætlunarinnar. Fjármálaráð bendir á að ekki megi mikið út af bregða varðandi áætlaðan vöxt hagkerfisins til að ógna framvindu hennar. Hagvöxtur framtíðar er í eðli sínu óvissu háður og eykst sú óvissa eftir því sem lengra líður fram. Því telur fjármálaráð ástæðu til að ítreka, í ljósi grunngildis um varfærni, að gerð sé næmnigreining á áhrifum frávika frá hagvaxtarspá á möguleika hins opinbera til að ná markmiðum sínum.
Verði hagvöxtur lægri á tímabili fjármálaáætlunar en gert er ráð fyrir er hætt við að afkoman fari niður fyrir gólf stefnunnar. Í þessu sambandi bendir fjármálaráð á að minni hagvöxtur hefur ekki sömu áhrif á tekjur og gjöld. Skatttekjur eru næmar fyrir breytingum í hagvexti. Ríkisútgjöld breytast hins vegar með tregari hætti og gætu jafnvel aukist ef hagvöxtur verður minni en vænst var, t.d. vegna aukinna útgjalda í atvinnuleysistryggingakerfi og félagslegra tilfærslna. Þungvægt verður að telja að fjármálaráð ítrekar fyrri ábendingar um að töluleg stefnumið fjármálastefnu taki ekki mið af efnahagsframvindunni. Við slíkar aðstæður sé hætt við að stefnumið sníði hagstjórninni þröngan stakk sem geti unnið gegn stöðugleika. Raunar má telja hin tölusettu markmið afkomureglunnar og skuldareglunnar vera sniðin að góðæristímum eins og þeim sem ríkt hafa á nýliðnum árum. Bjáti á í efnahagslífinu yrði vart mikið eftir af þeim ef sjónarmið raunsæis og stöðugleika væru talin vega þyngra en tölusett viðmið sem við slíkar aðstæður mætti jafnvel kenna við óskhyggju.
Fjármálaráð bendir á að tölusettar fjármálareglur og grunngildi geta rekist á. Aðstæður geta myndast þar sem afkomuregla og skuldaregla ganga gegn grunngildum um stöðugleika, t.d. við þær aðstæður þar sem ytri áföll leiða til skarps samdráttar í efnahagslífinu. Hvernig hægt verður að beita opinberum fjármálum til aukins stöðugleika við slíkar aðstæður er óljóst. Fram hjá þessari ábendingu fjármálaráðs verður ekki litið. Verður að telja alvarlegan ágalla á fjármálaáætlun hve mjög skortir á að gerð sé grein fyrir áhrifum breyttra forsendna um þróun helstu hagstærða og þá ekki síst ef hægir meira á efnahagslífinu en lagt er til grundvallar í áætluninni. Alvarlega skortir á umfjöllun um þetta atriði og er það dregið fram í áliti fjármálaráðs þegar rætt er um að notkun sviðsmynda og að aukinn sveigjanleiki í framsetningu tölusettra markmiða væri til bóta.
Efnahagsforsendur einkennast af umtalsverðri óvissu og veikleikamerkjum eins og sést af nýrri hagspá Hagstofu Íslands og ummerkjum í ferðaþjónustu, en umfang hennar er orðið slíkt að áhrif hennar greinast víða í hagkerfinu. Telja verður að þegar liggi fyrir vísbendingar um lakari skilyrði en þau sem liggja að baki framlagðri fjármálaáætlun. Um þetta atriði segir fjármálaráð að aukin umfjöllun og gagnsæjar greiningar um áhrif hugsanlegra áfalla, sem tengd eru mikilvægum atvinnugreinum, á opinber fjármál séu nauðsynlegar til að hægt sé að meta hvort áætlanir uppfylla skilyrði um stöðugleika og varfærni.
Fjármálaráð tekur fram að áætlun um heildarafkomu hins opinbera sem hlutfall af vergri landsframleiðslu sé í samræmi við samþykkta fjármálastefnu en bendir á að lítið megi út af bregða til að afkoma hins opinbera árið 2018 fari niður fyrir stefnumið um 1,4% afgang. Viðvörunarorð fjármálaráðs er rétt að taka upp hér. Með leyfi forseta:
„Nær allt tímabil fjármálaáætlunarinnar er afkoma hins opinbera við gólf afkomumarkmiða gildandi fjármálastefnu. Útgjaldavöxtur síðustu ára hefur verið mikill og áætlunin boðar áframhaldandi vöxt á fyrri hluta áætlunartímabilsins. Á sama tíma er tekjuhliðin veikt. Slíkt hefur áhrif til minnkaðs aðhalds. Tímasetningar áforma um aukin útgjöld og minni tekjur þarf að skoða í samhengi við hagsveifluna.“
Naumast verður orðað með gætilegri og smekklegri hætti að í fjármálaáætlun teflir ríkisstjórnin á tæpasta vað, svo að ekki sé sterkar að orði komist. Ekki verður betur séð en fyrir varfærni fái ríkisstjórnin falleinkunn af hálfu fjármálaráðs.
Enn fremur er rétt að benda á að mörk tölusettrar skuldareglu geta komið í veg fyrir að ráðist verði í þjóðhagslega arðsamar fjárfestingar. Fjármálaráð bendir á að slíkt geti gengið gegn grunngildi um sjálfbærni.
Ég mun nú, frú forseti, beina máli mínu að kjörum hinna lakast settu í samfélaginu.
Fjárlaganefnd barst fjöldi umsagna um fjármálaáætlun, þar á meðal frá samtökum sem gæta hagsmuna fólks sem stendur af ýmsum ástæðum höllum fæti í samfélaginu, þar á meðal eru hópar aldraðra, öryrkja og tekjulágra fjölskyldna vinnandi fólks.
Ekki verður nógsamlega undirstrikað hve rík nauðsyn er á að komið verði til móts við þessa mikilvægu þjóðfélagshópa.
Eitt meginmarkmið málefnasviðsins örorka og málefni fatlaðs fólks er samkvæmt fjármálaáætluninni „að öll þjónusta og stuðningur, þar á meðal bætur og greiðslur stuðli að því að fólk með skerta starfsgetu geti lifað sjálfstæðu lífi“. Í sömu fjármálaáætlun er gengið út frá því að hækkun lífeyris almannatrygginga verði einungis á bilinu 3,1%–4,3% næstu fimm árin. Eðlilegt er að ÖBÍ spyrji í umsögn sinn hvernig fólk með skerta starfsgetu eigi að geta lifað sjálfstæðu og mannsæmandi lífi með slíkri framfærslu. Í þessu ljósi telur ÖBÍ fjármálaáætlun algjörlega óásættanlega og muni engu breyta um kjör fólks, sem búið hefur við verulegan skort árum saman sem meðal annars kemur niður á börnum örorkulífeyrisþega.
Hækkun lífeyris almannatrygginga hefur verið undir hækkun launavísitölu síðustu ár. Ekki verður annað séð af fjármálaáætluninni, eins og ÖBÍ bendir á í umsögn sinni, en að ætlunin sé að svo verði áfram.
Frú forseti. Sem kunnugt er búa örorkulífeyrisþegar við mun verra kerfi og lakari kjör en ellilífeyrisþegar frá því nýtt kerfi ellilífeyris almannatrygginga tók gildi í ársbyrjun 2017. Ráðgert er að koma á nýju einfaldara og sveigjanlegra kerfi árið 2019 sem leggi áherslu á getu fólks til starfa. Hins vegar er miður að áform ríkisstjórnarinnar gagnvart málefnum öryrkja eru afar óljós eins og þau birtast í fjármálaáætlun. Gagnvart þessu alvarlega ástandi sem hér hefur verið lýst og dregið fram, ekki síst af ÖBÍ og fleiri aðilum, skilar ríkisstjórnin nánast auðu með óljósum fyrirheitum í stað þess að tryggja viðunandi lífskjör þess fólks sem býr við slökustu kjörin og minnstu möguleikana í samfélaginu. Þeirri stefnu verður að linna, frú forseti, að fólki með skerta starfsorku sé haldið í manngerðri fátæktargildru.
Alþýðusamband Íslands bendir á í umsögn sinni að gert sé ráð fyrir óbreyttu kerfi vaxtabóta og viðmiðunarupphæðum næstu árin, þrátt fyrir að skerðingarmörk hafi verið hækkuð, bæði árið 2017 og 2018, byrja barnabætur að skerðast vegna tekna umfram 200.000 kr. Þetta er langt undir lágmarkslaunum sem nú eru 300.000 kr.
Ég mun nú víkja að nokkrum þáttum varðandi heilbrigðismál. Sem kunnugt er gerði Ríkisendurskoðun nýlega leit að heilbrigðisstefnu fyrir landið en gaf út skýrslu þess efnis að hún hefði ekki fundist. Heilbrigðisstefna er ekki fyrir hendi. Þetta má lesa í skýrslu frá Ríkisendurskoðun. Alvarlegt umhugsunarefni er að stjórnmálaflokkar með langa sögu á Alþingi sem fjármagnaðir eru af almannafé auk frjálsra framlaga skuli þrátt fyrir að hafa haft auð fjár milli handa og ærinn tíma sem mælist í starfsævum setjast hugmyndasnauðir og tómhentir í stól heilbrigðisráðherra í stað þess, eins og gera verður kröfu til, að leggja á borð með sér fullmótaða framtíðarstefnu í heilbrigðismálum.
Kröfulýsingar vegna þjónustu sem velferðarstofnunum í heilbrigðismálum er ætlað að veita og er mótuð af ríkisstjórn á hverjum tíma hafa reynst langt undir þeim kröfum sem gera ber til slíkrar þjónustu eins og embætti landlæknis hefur ítrekað bent á. Gömlu stjórnmálaflokkarnir hafa til þessa skilað auðu í þessu efni og ekki tekið á þessu misræmi þar sem eldri borgarar sem eiga rétt, svo að beitt sé líkingamáli, á fimm stjörnu þjónustu, samkvæmt viðmiði landlæknis um gæði þjónustunnar, sitja uppi með að fá, svo að líkingamálinu sé haldið, tveggja til þriggja stjörnu þjónustu í boði stjórnvalda. Engin raunhæf stefna hefur verið lögð fram í þessu efni af hálfu velferðarráðherra.
Landspítalinn er stærsta fyrirtæki ríkisins og í hópi stærstu fyrirtækja landsins. Í slíkum fyrirtækjum hefur þótt nauðsynlegt að skipa stjórn skipaða færasta fagfólki sem völ er á hverju sinni. Verkefni stjórnar er að styrkja rekstur og stjórnun fyrirtækisins og veita framkvæmdastjórn nauðsynlegt aðhald og stuðning. Ég tel ástæðu, og ég tala hér sem 4. minni hluti fjárlaganefndar, svo að það sé nú áréttað, ástæðu til að leggja áherslu á að slík stjórn verði skipuð yfir Landspítalann. Undirstrika ber að slíka stjórn þarf að manna fólki sem fullnægir ströngustu hæfniskröfum um menntun og reynslu á sviði rekstrar annars vegar og heilbrigðisvísinda hins vegar.
Að öðrum ólöstuðum, frú forseti, verður aldrei ofmetið hið erfiða hlutverk SÁÁ. Því er sárgrætilegt að horfa upp á að meðan þörf fyrir þjónustuna fer því miður vaxandi skuli draga úr stuðningi stjórnvalda við hana. Væri ekki fyrir skilning almennings og samstöðu um baráttu SÁÁ gegn áfengis- og fíknivanda væri þessi starfsemi vart nema svipur hjá sjón. Vakni stjórnvöld ekki til vitundar um mikilvægi þessarar starfsemi blasir við að nauðsynleg meðferðarúrræði eins og dagdeild verði ekki fyrir hendi áður en langt líður miðað við þær upplýsingar sem lagðar voru fram í fjárlaganefnd Alþingis. Undan því verður ekki vikist að bæta úr fjárhagsstöðu SÁÁ enda fara fá heimili í landinu varhluta af áfengis- og fíknivandanum.
Ég mun nú víkja að húsnæðismálum. Veigamikla umfjöllun um húsnæðismál er að finna í umsögn ASÍ til fjárlaganefndar. Bendir ASÍ á, sem alkunna er, að erfiðar aðstæður ríki um þessar mundir á húsnæðismarkaði.
ASÍ bendir á að með kjarasamningum í maí 2015 hafi náðst samkomulag um að hefja aftur uppbyggingu félagslegs íbúðarhúsnæðis með byggingu 2.300 íbúða á árunum 2016–2019, að hámarki 600 íbúðir á ári, með 30–40% niðurgreiðslu ríkis og sveitarfélaga til þess að tryggja að leiga að frádregnum húsnæðisbótum verði ekki hærri en 25% af tekjum. Að mati sérfræðinga var talið að til þess að geta byggt 600 íbúðir á ári þurfi framlag ríkisins að vera 3 milljarðar kr. á ári. Hefur þessi fjárhæð verið á fjárlögum og í ríkisfjármálaáætlun síðan.
ASÍ segir í áliti sínu, sem það kynnti fjárlaganefnd, að komið hafi í ljós að þessi framlög dugi ekki til að hægt verði að byggja þessar 600 íbúðir. Skýrist þetta af aukinni uppbyggingu íbúða fyrir námsmenn og öryrkja sem rétt eiga á allt að 40% framlagi ríkis og sveitarfélaga og vegna þess að raunkostnaður við byggingu íbúðarhúsnæðis hefur vaxið um ríflega 12%.
Hafi ríkisstjórnin að markmiði að efna þau loforð sem gefin voru við gerð kjarasamninganna 2015 telur ASÍ ljóst að auka verði þessi framlög um 600 millj. kr. á gildandi fjárlögum og í fjármálaáætlun ásamt því að gera ráð fyrir eðlilegri hækkun byggingarkostnaðar á næstu árum.
Af hálfu 4. minni hluta fjárlaganefndar er tekið undir þá kröfu Alþýðusambandsins að stjórnvöld stígi inn með afgerandi hætti til að leysa eða stuðla að lausn á þeim vanda sem við blasir á húsnæðismarkaði landsmanna.
Ég vík nú að innviðum, frú forseti. Samtök iðnaðarins taka fyrir átak í innviðum í umsögn sinni til fjárlaganefndar en þessi samtök hafa nýlega sent frá sér yfirgripsmikið og vandað rit um innviði í landinu. Er að þessu riti mikill fengur vil ég leyfa mér að segja. Samtökin benda á að fjárveitingar til vegamála hafi verið allt of litlar undanfarin ár og stórátak þurfi til að bæta úr. Í fjármálaáætlun, sem kynnt var í byrjun apríl, segjast þau því miður ekki finna vott af slíku átaki. Samkvæmt áætluninni verði framlög til samgöngumála viðlíka hlutfall af landsframleiðslu á tíma áætlunarinnar næstu fimm árin og þau hafa verið síðustu fimm ár og langt undir þörf. Það liggi fyrir að framlög til innviðauppbyggingar þurfi að aukast varanlega til að sinna nauðsynlegri viðhaldsþörf og nýfjárfestingu. Þar fyrir utan þurfi átak til að vinna á uppsöfnuðum vanda, sem er ærinn, eins og fram hefur komið, ekki síst af hálfu samgönguráðherra. Samkvæmt áætluninni verða framlög til viðhalds og nýframkvæmda í vegamálum að meðaltali 0,7% af landsframleiðslu á tímabilinu. Er það langt undir langtímameðaltali hér á landi eftir því sem Samtök iðnaðarins greina frá, en þetta hlutfall var, svo að dæmi sé tekið 1,1% á tíu ára tímabilinu frá 2001–2010.
Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir að frá árinu 2019 bætist við sérstök árleg framlög þriggja ára sem nemi árlega 5,5 milljörðum kr. Þessi þrjú ár nær hlutfall samgönguframkvæmda ekki langtímameðaltali og hafa Samtök iðnaðarins uppi þau orð í umsögn sinni að það séu vægast sagt öfugmæli að tala um stórátak í þessu sambandi.
Þess má einnig geta að þegar þetta þriggja ára tímabil er liðið fer fjárfestingarhlutfallið í vegamálum niður í tæplega 0,6% af landsframleiðslu, en einungis eitt ár á síðustu áratugum hefur hlutfallið farið lægra, en það var árið 2012 eins og samtökin benda á.
Ég vík nú máli mínu, frú forseti, að því sem kallað hefur verið þjóðarsjóður. Í stjórnarsáttmála er boðuð stofnun þjóðarsjóðs. Þar kemur fram að sjóðurinn verði fjármagnaður með arði af auðlindum landsins. Þar kemur einnig fram að hlutverk hans verði að byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum. Jafnframt verði hlutverk sjóðsins að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprotafyrirtækja. Þá verði hluti sjóðsins nýttur til átaks í uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir elstu kynslóðina. Umfjöllun um þjóðarsjóð var einnig að finna í greinargerð með tillögu að þingsályktun um fjármálastefnu.
Í 4. kafla um fjármál ríkissjóðs í fjármálaáætlun birtist það stefnumið að hugað verði að uppbyggingu þjóðarsjóðs til að mæta ófyrirséðum áföllum sem fjármagnaður verður með reglulegum arðgreiðslum félaga í ríkiseigu. Hér virðist fjármögnun sjóðsins eiga að byggja á breiðari grunni. Í sviðsmynd tvö, sem þarna birtist, er síðan gert ráð fyrir að um 50 milljarðar kr. fari í uppbyggingu þjóðarsjóðs með ráðstöfun á hluta söluandvirðis eigna sem eru óreglulegar tekjur.
Miðað við þær fjárhæðir sem hér um ræðir verður, eins og gert er í umsögn fjármálaráðs, að kalla eftir skýrari stefnumótun með vísun í grunngildi um gagnsæi og festu. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögum er gert ráð fyrir að sjóðurinn varðveiti og ávaxti tekjur af auknum arðgreiðslum frá orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins og gegni því meginhlutverki að verða eins konar áfallavörn þegar ríkissjóður verður fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyrirséð áföll á þjóðarhag. Einnig liggja fyrir áform af hálfu stjórnvalda um að nýta hluta af þessum arðgreiðslutekjum til að styðja, eins og áður segir, við nýsköpun í atvinnulífinu og til að auka fjármagn til uppbyggingar á hjúkrunarrýmum.
Þær upplýsingar sem fram hafa komið um þjóðarsjóð, verður að segjast, frú forseti, vekja fleiri spurningar en þær svara. Hvert á að vera hið eiginlega hlutverk þjóðarsjóðs? Hver á að fara með málefni hans? Hverjir eiga að njóta útgreiðslna úr sjóðnum? Hvert á að vera samband hans við ríkissjóð? Hvaða verkefni á sjóðurinn að hafa með höndum sem ríkissjóður getur ekki sinnt? Hver á að vera aðkoma Alþingis að málefnum sjóðsins? Ummæli í áliti fjármálaráðs, um freistnivanda í þessu sambandi, verður að túlka sem svo að þar sé varað við hættu á spillingu. Að framan hafa verið rakin dæmi um freistnivandann í framkvæmd eins og hann birtist gagnvart meðferð fjár úr hinum almenna varasjóði. Ríkissjóður er umlukinn lagaákvæðum sem ætlað er að tryggja ábyrga meðferð fjár í samræmi við ábyrgð ráðherra og fjárstjórnarvald Alþingis. Vandséð er að þjóðarsjóður geti betur rækt af hendi verkefni sem annars ættu að réttu lagi heima á vegum ríkissjóðs.
Frú forseti. Fjármálaáætlun er stærra mál en svo að dregið verði saman í fáum orðum innihald hennar, en þar er vitaskuld margt gott að finna. Um forsendur hennar verður þó ekki annað sagt en að hún sýnist reist á óhæfilega mikilli bjartsýni um horfur í efnahagsmálum. Samt á að gefa eftir á tekjuhlið og miða við að reksturinn verði í járnum. Hér sýnist því ríkisstjórnin komin á ystu nöf gagnvart grunngildi um varfærni. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar kemur glöggt fram í áætluninni. Gagnvart tekjulægstu hópum samfélagsins birtist stefna sem sætir harðri gagnrýni í umsögnum Samtaka launafólks, öryrkja og bótaþega, auk áhrifamikilla verkalýðsforingja eins og formanns Verkalýðsfélags Akraness. Þetta gerist á sama tíma og lögð er áhersla á að lækka bankaskatt og færa forréttindahópum þannig umtalsverða fjármuni. Sú réttlæting fulltrúa stjórnarflokkanna, a.m.k. sumra hv. stjórnarþingmanna, á þessari aðgerð, að hún muni leiða til samsvarandi lækkunar vaxta af hálfu lánastofnana, fékk ekki stuðning á fundum fjárlaganefndar þar sem fulltrúar lánastofnana treystu sér ekki til að fullyrða, aðspurðir, að áhrifin yrðu þessi, að vextir myndu lækka með samsvarandi hætti og lækkun bankaskatts.
Lækka á, samkvæmt þeim áformum sem liggja fyrir, neðra þrep tekjuskatts án þess að nýta þá aðgerð til að bæta hag hinna tekjulægstu sem unnt væri að gera með því að hækka persónufrádrátt í þágu þeirra samhliða því sem hann færi lækkandi með hærri tekjum. Þarna sjáum við auðvitað mjög skýrt þá forgangsröðun sem ríkir í þessum efnum.
Að lokum vil ég fagna því að fjárlaganefnd hafi staðið saman sem heild að sameiginlegum ábendingum og tillögum. Með þessu undirstrikar fjárlaganefnd faglegt hlutverk sitt óháð stjórnmálalegum sjónarmiðum. Þetta atriði er þýðingarmikið í ljósi mikilvægis nefndarinnar og faglegs hlutverks sem henni er lagt á herðar við eftirlit með framkvæmd fjárlaga og framsetningu fjárlaga, fjármálastefnu og fjármálaáætlunar.