fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir prýðisgóða ræðu og yfirferð um þau málefni sem hér eru til umræðu. Í byrjun ræðu sinnar kom þingmaðurinn inn á mál sem snúa að nýtingu hins almenna varasjóðs sem gert er ráð fyrir í lögum um opinber fjármál. Þar sem ég kem hingað til starfa úr verktakabransanum hef ég séð töluvert af kostnaðaráætlunum í gegnum tíðina. Það er iðulega liður sem er kallaður með einu eða öðru orðalagi „ófyrirséð“ þar sem menn ætla að hafa borð fyrir báru gagnvart hlutum sem þeir sjá ekki fyrir.
Af því sem ég hef séð varðandi fjárveitingu til vegamála, sem er á fimmta milljarð, sem er rúmlega helmingur af varasjóði ríkissjóðs, sýnist mér á öllu að ríkisstjórnin sjái þann lið fyrir sér sem ófyrirséðan lið þar sem hægt sé að græja mál sem hún áttaði sig ekki á í tæka tíð eða hafði ekki kjark til að setja í fjárlög af því að það hefði ruggað bátnum of mikið. Mér þótti hv. þingmaður koma vel inn á hvaða sjónarmið kynnu að koma upp í því samhengi, því að þetta er augljóslega ekki tilgangur þessa ákvæðis. Þetta er ekki neyðarsjóður. Hinn almenni varasjóður er ekki hugsaður sem safnliður fyrir eitthvað ófyrirséð eða eitthvað sem menn þorðu ekki að klára í umræðu um fjárlög nokkrum mánuðum áður.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er eitthvað í verklaginu sem við urðum vitni að núna hvað meðferð þessa sjóðs varðar sem bendir til þess að sú ríkisstjórn sem nú situr ætli sér að ganga um þennan sjóð með þeirri ábyrgð sem lagaumhverfið kallar á?