148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[16:41]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta fjárln. (Ólafur Ísleifsson) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni, félaga mínum í fjárlaganefnd, fyrir andsvarið. Mér finnst hann koma beint að kjarna málsins með sínu andsvari þegar hann talar um það að ef hlutirnir eiga að vera eins og hann lýsti og við erum hér nokkrir þingmenn búnir að fara yfir í framsöguræðum okkar, hvert er þá hlutverk Alþingis?

Ég leitaðist við það í minni ræðu að fjalla um það í samhengi við þessa fjárráðstöfun úr hinum almenna varasjóði sem við höfum báðir talið að orki tvímælis, í ljósi þeirra skilyrða sem sett eru í 24. gr. laganna um opinber fjármál, hvaða þýðingu og merkingu ákvæði laganna um upplýsingar ráðherra til fjárlaganefndar varðandi ráðstöfun fjár eigi að hafa.

Það var mín niðurstaða að það geti bara ekki verið að tilgangur þeirra ákvæða sé, eins og ég leyfði mér að komast að orði, að skapa einhvern lagagrundvöll undir einhvers konar blaðamannafundi þar sem fjárlaganefnd Alþingis, trúnaðarmenn þingflokkanna á Alþingi í fjármálum ríkisins eigi bara að mæta þar eins og einhverjir leikmunir á fréttamannafund til þess að hlýða þar á erkibiskups boðskap í þessum efnum án þess að álit þeirra hafi nokkra þýðingu, álit þeirra um þessa ráðstöfun annars vegar og álit á því hvort þessum tilgreindu skilyrðum í 24. gr. sé fullnægt.

Þess vegna er af minni hálfu borið fram með þeim þunga sem mér er unnt að lýsa áhyggjum af þessari meðferð á þessum sjóði. Eigi þetta að vera svona þá álít ég að það sé grafið undan lögunum um opinber fjármál og jafnframt að það sé grafið undan fjárstjórnarhlutverki Alþingis. Það er ekki lítið mál.