fjármálaáætlun 2019--2023.
Ég var í fyrra fallinu bara að segja við virðumst vera sammála um það, ég og hv. þingmaður, um mikilvægi þess að styrkja og auka burði Alþingis til að leggja sjálfstætt mat á hluti, ekki síst í tilvikum af þessu tagi. Ég endurtek að ég held að það sé sérstaklega mikilvægt að Alþingi styrki sig hvað varðar efnahags- og fjármálahliðina og líka að standa vel á bak við starfsemi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þá er ég að hugsa um annars vegar fjárveitingarvaldið og fjárstjórnar- og fjáreftirlitsvaldið og hins vegar hið almenna eftirlitshlutverk Alþingis þar sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leikur lykilhlutverk.
Varðandi aðhald og skattalækkanir á óheppilegum tímum og annað í þeim dúr þá er hv. þingmaður augljóslega að reyna að veiða forseta inn á hinn pólitíska vígvöll. Ég hafði ætlað mér að halda mjög ópólitíska faglega ræðu sem forseti Alþingis og lenda ekki í umræðum um það, (Gripið fram í.) en auðvitað hleyp ég ekki frá fyrri orðum. Ég gagnrýndi ýmislegt í áherslum í ríkisfjármálum á umliðnum árum og er satt best að segja ekki viss um að ég og hv. þingmaður höfum verið mjög ósammála. Ég hef auðvitað mínar áhyggjur af hlutum, þar á meðal núna. En ég bendi þó á að sá er munurinn borið saman við fyrri ár, ég tala nú ekki um t.d. topp hagsveiflunnar 2016, að nú er hagkerfið kólnandi. Það mætti deila um hvað mikið, en það er greinilega þó frekar í þá áttina. Þá snúa hlutir af því tagi, að auka jafnvel frekar útgjöld en hitt, að draga þau saman, dálítið öðruvísi við hagstjórnarlega. En ég er ekki ósáttur við þær áherslur sem hér er verið að bera fram.