148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[17:22]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég skal láta það vera að draga hæstv. forseta og hv. þingmann frekar inn á hinn pólitíska völl. Ég heyrði það strax og þingmaður hafði hafið ræðu sína að hann talaði þar sem forseti en ekki þingmaður en stóðst samt ekki mátið að spyrja hann aðeins út í þessi mál.

Það sem ég held hins vegar að sé mjög gott að hafa í huga, sem snýr að efni ræðu þingmannsins eða hæstv. forseta — ég fagna mjög þeim áherslum sem þarna er verið að leggja á að efla starfsemi þingsins. Ég fagna líka mjög þeim metnaðarfullu áformum sem eru um að koma þinginu undir eitt þak. Ég held að það sé ágætt fyrir okkur að hafa það í huga að að vegsemd þingsins og styrkur þess má ekki verða afgangsstærð í fjármálum hins opinbera þegar t.d. kreppir að að nýju. Ég vona svo sannarlega að það verði ekki það sem fyrst verður skorið niður, hvenær sem að því kemur að við munum þurfa að þrengja að okkur að nýju, því að ég held að á slíkum tímum sé einmitt mjög mikilvægt að þingið sé sterkt og að þingmenn hafi þann stuðning sem þeir þurfa til þess að geta sinnt störfum sínum af metnaði.

Því miður hefur það oft verið á fyrri tímum að þrengt hefur verið að svona verkefnum, jafnvel kallað gæluverkefni, en ég held að vegsemd, virðing og styrkur þingsins megi aldrei teljast vera gæluverkefni eða eitthvað sem skera megi niður við fyrsta tækifæri.