fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég er spenntur að lesa lengra í skýrslunni, en er sammála hv. þingmanni um að framsetningin á niðurstöðunum um að virða leikreglurnar og agann er athyglisverð. Við erum að vinna með þetta regluverk í hv. fjárlaganefnd, lög um opinber fjármál. Það er nú orðið býsna samhangandi ferli, sem er stefna og áætlun samhliða framkvæmd fjárlaga. Svo koma fjárlögin þegar við mætum aftur í september. Þetta er því samhangandi ferli.
Nú hefur hv. þingmaður setið beggja vegna borðs sem ráðherra og þingmaður á nú sæti í hv. fjárlaganefnd. Hvernig sér hann þetta verklag? Upphaflegi tilgangurinn var að auka agann í fjármálum þannig að samspil næðist á milli fjármálastefnu og peningamálastefnu, sem lengi hefur verið talað um. Erum við ekki á réttri leið í því þó að við þurfum að bæta ýmislegt í verklaginu? Það kemur fram í öllum álitum í meiri hluta fjárlaganefndar og í minnihlutaálitum sem við höfum fjallað um í dag, og að sama skapi í sameiginlegum ábendingum hv. nefndar, sem var mjög lofsvert framtak í nefndinni og hv. þingmaður tók þátt í að móta. Ég vil jafnframt nota tækifærið og þakka hv. þingmanni samstarfið í nefndinni.