148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[18:07]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í fyrsta lagi hvaða spár við eigum að nota. Það er auðvitað augljóst. Við getum ekki notað neinar aðrar spár en hinar opinberu hagspár. Auðvitað verðum við að byggja slíka vinnu á hagspá Seðlabankans og Hagstofu líkt og við erum að gera. En þegar við fáum þau skýru varðnaðarorð um að forsendur þeirra kunni að vera mjög bjartsýnar eða jafnvel óraunhæfar þá kallar það einmitt á þá sviðsmyndagerð sem hefur verið rædd í fjárlaganefndinni, að búa til sviðsmyndir um það ef einhverju bregður til verri vegar, hvernig ríkisfjármálin myndu þá líta út í því samhengi. Og það sem augljóslega er bent á að varlega sé stigið til jarðar, t.d. í útgjaldaaukningu eða út frá sjálfbærni ríkisfjármálanna, horft sé til þess og sagt: Við gætum þurft í raun og veru að hækka skatta til að fjármagna þetta samneyslustig til lengdar. Það er það sem núverandi ríkisstjórn horfir fram hjá í málamiðlun sinni, að horfa til þess einfaldlega að, jú, sennilega höfum við efni á þessu útgjaldastigi akkúrat núna. En hættan er alltaf þessi sama.

Við tölum stundum um froðu, ég vil ekki segja froðu í tekjuöflun ríkissjóðs, en við vitum alveg að tekjur og gjöld ríkissjóðs eru mjög hagsveiflunæm. Tekjur aukast mjög hratt í uppsveiflunni, en dragast líka mjög skarpt saman þegar dregur saman í hagkerfinu aftur. Sama gildir um útgjöldin, við horfum til þess að útgjöld, t.d. til barnabóta, vaxtabóta og húsnæðisbóta, hafa tilhneigingu til þess að hækka í samdrætti. Sama er hið augljósa með atvinnuleysisbætur.

Við þurfum að horfa framan í þetta og gera ráðstafanir til að ríkissjóður geti brugðist við samdrættinum ef hann kemur. Ágætt er að hafa það í huga líka þegar kannski harðasta viðmið fjármálareglna laganna um opinber fjármál er skuldaviðmiðið. (Forseti hringir.) Það þarf ekki mikið að bregða út af til að ríkissjóður megi einfaldlega bara ekki reka sig í neinum halla af því að hann sé í skuldaþakinu.