148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[18:40]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það eru mörg áhugaverð atriði hér hvað varðar stefnu stjórnvalda í þessum málaflokki, háskólastiginu til dæmis. En það hafa líka orðið ýmsar breytingar á skólastiginu, nú síðast með styttingu framhaldsskólans í þrjú ár. Í tengslum við markmiðasetningu, stefnusetningu, er áhugavert að skoða þær breytingar sem urðu á áherslum Vísinda- og tækniráðs eins og þær voru og eru núna. Nú er sagt að „setja skuli stefnu“ eða „skoða þetta eða hitt“ en í fyrri stefnu voru miklu markvissari upphæðir, gert ráð fyrir þeim. Það er eins og bakkað hafi verið með þetta, það virðist ekki hægt að uppfylla þetta. Það hljómar fyrir mér eins og aðkallandi þörf sé á menntastefnu, að skoða menntakerfið í heild sinni og hvernig það virkar fyrir okkur, skoða ákall um aukna verkmenntun og að taka leikskólann inn í þetta, hvernig það passar yfir í háskólakerfið o.fl.

Það er í stefnu stjórnvalda, eins og hv. þingmaður kom inn á varðandi endurnýjunina, að auka eigi hlutfall kvenna meðal prófessora og auka hlutfall akademískra starfsmanna undir 40 ára. Mér fannst það rosalega áhugaverð markmið og spurði um þau í fjárlaganefnd. Ég var að velta fyrir mér hvort svipuð umræða hefði verið í allsherjar- og menntamálanefnd, hvernig það ætti að nást að hækka hlutfall kvenna meðal prófessora úr 30% upp í 40% á þessum sex árum og hækka hlutfall akademískra starfsmanna undir 40 ára um 6%. Ef rætt var um það hefði ég áhuga á að heyra það.