fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir svarið. Ég er hræddur um að þessi skoðun þingmannsins sé á svipuðum nótum og þróun sýslumannsembættanna horfir við mér. Ég held að við þurfum að horfa til þess að einingarnar verði sterkari, bæði fjárhagslega og hvað faglega þekkingu varðar. Það var, eins og við þekkjum, markmiðið með þessum breytingum og sameiningum á sínum tíma.
Mig langar að víkja aftur að því sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason kom inn á varðandi lögregluembættin. Hvaða marki telur hv. þingmaður að við þyrftum að ná til að mál væru með forsvaranlegum hætti miðað við þau markmið sem stjórnvöld hafa sett sér á undanförnum árum? Er það að ná þeim fjölda aftur sem áður var? Sér hv. þingmaður fyrir sér að það sé ákveðið hlutfall sem æskilegt væri að ná? Mér leikur hugur á að heyra sjónarmið hans í þessum efnum vegna fyrri starfa hans. Því að þetta skiptir máli.
Maður heyrir það úr öllum áttum, a.m.k. í því kjördæmi sem ég er fulltrúi fyrir, að veruleg þörf sé á að styðja við lögregluliðin, efla þau á alla vegu, bæði fjárhagslega og faglega og hvað fjölda lögreglumanna varðar.
Þá ítreka ég spurninguna: Hvað sér hv. þingmaður fyrir sér að þurfi að vera markmiðið sem ætti að ná innan fimm ára tímaramma þeirrar fjármálaáætlunar sem nú er til umræðu?