fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Markmið stjórnvalda varðandi lögreglu hafa ekki birst. Beðið er eftir löggæsluáætlun. Það er búið að bíða eftir henni — ég ætla ekki að fullyrða hvað mörg ár, en beðið hefur verið eftir að löggæsluáætlun verði lögð fram í talsverðan tíma. Ég veit ekki til þess að hún hafi birst enn þá, en hún er búin að vera lengi í vinnslu. Hún var líka í vinnslu þegar ég starfaði innan lögreglunnar. Hún er ekki enn komin. Þá var hún á lokametrunum.
Markmið varðandi fjölda lögreglumanna eru alls ekki skýr, en þær skýrslur sem komið hafa út og innanríkisráðuneytið hefur m.a. unnið að, hafa leitt í ljós skoðanir lögreglunnar á þessu efni, eins og ég fjallaði um í ræðu minni áðan. Talið er að það vanti 200, 300 lögreglumenn til að uppfylla þessar þarfir. Ég skal ekki segja hvort það sé einhver rétt tala í þessu, en það er talin vera mjög góð löggæsla ef tveir lögreglumenn eru á hverja þúsund íbúa, mjög góð löggæsla. Við erum núna með 1,4. Þannig að sjá má að þarna er himinn og haf á milli. Ég ætla ekki að segja að tveir lögreglumenn á þúsund íbúa sé sú hárrétta sem við gætum horft á, en við þurfum að horfa á nokkra aðra þætti. Hér á Íslandi erum við með björgunarsveitir. Það er náttúrlega þáttur sem skiptir máli þegar verið er að áætla afl lögreglu, hversu nauðsynlegt er að hafa lögreglu sterka.
Annað sem skiptir líka máli er að það eru ekki bara björgunarsveitir, í langflestum öðrum löndum er her til að bregðast við ef mikið liggur við. Þannig að það þyrfti auðvitað að bera það saman líka.
Ég gæti talað lengi um þetta. En varðandi sýslumannsembættin er líka ein hugmynd sem ég myndi vilja varpa fram og er ekki ný: Það er fullt af stofnunum á vegum ríkisins úti um allt land sem eru aðskildar og sem geta hugsanlega unnið miklu betur saman. Hægt er að efla sýslumannsembættin með því að sameina vinnu hjá (Forseti hringir.) þessum stofnunum. Nefni ég bara Vinnumálastofnun og Vinnueftirlitið, (Forseti hringir.) Fiskistofu, Umhverfisstofnun.