fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er auðvitað hægt að spyrja um ýmislegt þar sem þingmaðurinn kom víða við. Mig langar að spyrja út í eignaójöfnuðinn sem blasir við. Í nýlegu svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, kom fram, og má lesa út úr því svari, að 218 fjölskyldur sem mynda ríkasta 0,1% landsmanna áttu 201,3 milljarða kr. í hreinni eign í lok ársins 2016. Þessi hópur auðmanna jók hreinar eignir sínar um 14 milljarða kr. á því ári. Ef því væri dreift jafnt á hvern framteljanda kemur það þannig út að hver framteljandi hefði aukið hreina eign sína um 67 millj. kr. á árinu 2016, eða 5,6 milljónir kr. á mánuði. Ríkasta tíund þjóðarinnar tók til sín tæpan helming hinnar hreinu eignar sem varð til á því ári. Fyrir vissum við að ríkasta 10% þjóðarinnar á um þrjá fjórðu af öllum eignum í landinu, þannig að fyrir var mikið eignamisvægi. Það er að bæta í.
Ég hef heyrt hæstv. forsætisráðherra og hv. þingmenn Vinstri grænna ræða um þessa þróun hér á landi og einnig í öðrum löndum. Þeir segjast hafa áhyggjur af þessu en það er ekkert að finna í fjármálaáætluninni eða í kaflanum um breytingar á skattkerfinu sem gæti orðið til þess fallið að slá á þetta. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hv. þingmann hvort meiri hlutinn hafi ekkert rætt þetta, hvort það hafi ekki verið rætt (Forseti hringir.) að taka á þessu á næstu fimm árum.