148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[21:38]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Ég lít ekki svo á að fólk eigi að semja um það, en ég held að það sé mikilvægt, eins og margítrekað hefur komið fram í þessum ræðustól hjá ríkisstjórnarflokkunum, ef við ætlum að reyna að fá einhvern frið. Við þekkjum það, ég og hv. þingmaður. Okkar flokkar voru í ríkisstjórn og gerðu ákveðna atrennu að breytingu á skattkerfinu, að einhverju leyti vegna aðstæðna en líka sökum þess að okkar flokkar hafa ákveðna sýn á það. Við þurfum að eiga slíkt samtal við þá aðila sem skipta máli, þ.e. við atvinnulífið og verkalýðshreyfinguna, um það hvernig þessu verður best fyrir komið.

Ég held að það skipti máli. Við erum ekki endilega bestu sérfræðingarnir í því. Það fólk sem við erum að tala hér um hlýtur líka að vera í þeirri stöðu að vera sérfræðingar í þessu. Við höfum talað um endurskoðun á tekjuskatts- og bótakerfunum, þetta er svigrúm. (Forseti hringir.) Við erum með ígildi 14 milljarða sem við getum útfært. Mér finnst skipta máli (Forseti hringir.) að verkalýðshreyfingin hafi eitthvað um það að segja. Hvort það er túlkað sem svo að fólk sé að semja sig inn í eitthvað, það má vel vera, en mér finnst það vera samtal.