fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég var algerlega sammála þeirri stefnu ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að greiða niður skuldir. Það var mjög skynsamlegt. En það var ekki skynsamlegt að lækka skatta og lækka veiðigjöld á sama tíma. Við áttum að halda tekjunum og fara í innviðauppbyggingu. Það áttum við að gera. Það er svolítið afleiðingin af því sem við erum að glíma við núna.
Ég sagði ekki í ræðu minni að ekki væri verið að auka í heilbrigðiskerfið. En ég kalla hins vegar á að tekið sé á þeim vanda sem ríkir á Landspítalanum. Það þarf að gera það og við í Samfylkingunni gerum tillögu um það.