fjármálaáætlun 2019--2023.
Forseti. Talað var um að stefnt sé að því að lækka neðra þrep tekjuskattsins um eitt prósentustig. En það er líka sagt að verið sé að huga að heildarendurskoðun á tekjuskattskerfinu, m.a. einhverjar hugmyndir eins og ég er að tala fyrir, samhliða, en að þessar breytingar verði ekki gerðar nema í samráði við aðila vinnumarkaðarins sem ég held að sé skynsamlegt; ég held að hv. þingmaður hljóti að taka undir það. Það er þá hægt að nota þá fjármuni, þetta eina prósentustig, í þessar skattkerfisbreytingar. Þetta er alveg skýrt. Þetta liggur alveg fyrir. Þetta getur hv. þingmaður lesið með skýrum hætti á bls. 58 og 59. Hv. þingmaður verður bara að lesa.