fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Nú var stórt spurt. (Gripið fram í: Fátt um svör?) Svörin eru nefnilega lengri en ég næ að fara yfir. Ég hygg að ég verði núna að vísa til fjölmargra greina sem ég mun hafa skrifað á undanförnum árum og bent á. Ég hef ekki bara talað fyrir því að halda útgjaldaaukningunni niðri og jafnvel draga úr útgjöldum, ég hef líka haldið því fram að víða vanti útgjöld, það vanti framlög í ákveðna málaflokka. Þegar kemur t.d. að heimaþjónustu eldri borgara, þegar kemur að uppbyggingu hjúkrunarheimila og rekstri þeirra, (Forseti hringir.) er alveg augljóst og óumdeilanlegt (Forseti hringir.) að þar vantar fjármuni. Þeir eru til án þess að hækka skatta.