fjármálaáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Ég held að það verði mjög erfitt fyrir mig að svara spurningunni 100% á tveim mínútum, klára (BLG: Nei …) þessa spurningu. En eins og ég sagði áðan er þetta lykilatriði. Mín skoðun er að í vinnu okkar í fjárlaganefnd hafi okkur miðað ágætlega, t.d. í sambandi við grunndæmið sem hv. þingmaður kom einmitt með tillögu um að vinna með. Sviðsmyndirnar, sviðsmyndagreiningar. Ég hafði mikinn áhuga á að fá þær fram. En ég held að árangursmælingar hljóti að vera eitthvað sem við verðum að þróa miklu betur. Ég vil trúa því að það sé komið að því þegar menn ræða innleiðingu opinberra fjármála, við vitum að það mun taka góðan tíma, við erum ekkert komin alla leið, það er ljóst. Þetta er eitt af góðum markmiðum. Ég skal klárlega vera með hv. þingmanni í að vinna því brautargengi innan fjárlaganefndar að við hugum betur að þessu. Þetta er bara mjög góður punktur, eins og í öllum fyrirtækjarekstri, að menn séu með einhverja mælikvarða á það hvernig gengur hverju sinni og hvað menn fá fyrir fjármagnið. Enda hlýtur það að vera lykilatriði í ríkisrekstrinum að við fáum sem allra mest fyrir það fjármagn sem kemur inn í skatttekjur til ríkisins. Þetta snýst ekki alltaf um að hækka og hækka eins og margir tala um heldur að nýta fjármagnið sem allra best. Þetta hlýtur allt að ganga út á það.