148. löggjafarþing — 72. fundur,  8. júní 2018.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

202. mál
[17:05]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég fagna þessari niðurstöðu og tel hana hafa verið góða. Þetta var góð vinna sem við unnum öll og sérstaklega vil ég þakka, eins og ég gerði í ræðu minni áðan, hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni fyrir sína vinnu og hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að koma til móts við okkur og ná þessari góðu lendingu sem ég vona að veiparar og við öll verðum sátt við.