148. löggjafarþing — 72. fundur, 8. júní 2018.
rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
202. mál
Hæstv. forseti. Ég tel rafrettur eitthvert mesta heilbrigðismál sem fram hefur komið í seinni tíð, og líka nikótíntyggjó sem ég nota. Ég er því á móti því að við séum að takmarka þetta meira en þörf er á. Við eigum almennt að leyfa fólki að ráða því sjálft hvernig það hefur það hjá sér. Ég tek undir með hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur: Ef menn geta haft stórhættuleg rándýr inni hjá sér [Hlátur í þingsal.] geta þeir haft rafrettur. Ég segi nei.