148. löggjafarþing — 73. fundur,  8. júní 2018.

veiðigjald.

648. mál
[17:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjöld. Nefndin hefur fjallað um málið. Nefndin telur óheppilegt hversu seint henni bárust viðeigandi upplýsingar til að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um veiðigjald sem ljóst hefur verið að þyrfti að koma fram þar sem gildandi lög renna úr gildi við lok þessa fiskveiðiárs hvað varðar þær tegundir sem stjórnað er samkvæmt fiskveiðiári.

Með frumvarpinu er lagt til að veiðigjald fiskveiðiársins 2017/2018 verði framlengt óbreytt og gildi út almanaksárið.

Í því skyni að ná samkomulagi um þinglok telur meiri hlutinn rétt að ræða þær breytingar sem kveðið var á um í frumvarpi meiri hlutans á haustþingi. Þær breytingar sem lagðar eru til í því máli eru grundvallarbreytingar þar sem veiðigjöld verða afkomutengd og færð nær rauntíma.

Ljóst er að afkomutenging og það að færa útreikninga nær rauntíma mun hafa áhrif á upphæð innheimtra veiðigjalda í samræmi við afkomu greiðenda veiðigjalda hverju sinni. Mikilvægt er að við undirbúning nýs frumvarps sjávarútvegsráðherra um veiðigjald verði horft til afkomu greinarinnar og sérstaklega lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem mörg hver hafa átt í erfiðleikum með að takast á við versnandi rekstrarskilyrði.

Meiri hlutinn telur brýnt að horft verði til afkomutengdra veiðigjalda í rauntíma og sérstaks þrepaskipts afsláttar sem skili sér fyrst og fremst til lítilla og meðalstórra fyrirtækja í vinnu við heildarendurskoðun veiðigjalda sem bíður þingsins í haust.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir það rita sú sem hér stendur Lilja Rafney Magnúsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Njáll Trausti Friðbertsson.

Við í atvinnuveganefnd fengum málið í fangið. Það kom vissulega of seint fram til þess að hægt væri að fara í ítarlega umræðu um það miðað við þann skamma tíma sem eftir er til að ljúka þingstörfum. Við metum það þannig að við þurfum að taka þetta stóra verkefni fyrir strax í haust. Verkefnið bíður okkar, það hverfur ekki. Staðreyndir málsins bíða okkar líka, staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja er mjög erfið. Það eru vissulega miklar áhyggjur gagnvart þeim fyrirtækjum sem hugsanlega munu leggja upp laupana því að ekki var hægt að afgreiða aukin afslátt til þessara litlu fyrirtækja sem eiga erfitt. En við vonum að þau fyrirtæki standi það af sér og við getum komið hér í haust og komið okkur saman um heildarlöggjöf þar sem horft er til afkomu á rauntíma og þess að við þurfum að mæta hinum litlu og meðalstóru fyrirtækjum með sérstökum afslætti. Ég vona að við náum samstöðu. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að við, þingið, tökumst á við það stóra og mikla verkefni sem bíður okkar í haust þó að við höfum ekki gert það núna og þó að þessi málsmeðferð hafi verið hluti af samningum um þinglok.