veiðigjald.
Herra forseti. Vandræðagangur ríkisstjórnarinnar út af þessu máli er henni einni að kenna og engum öðrum. Ef við ætlum að taka á raunverulegum vanda lítilla útgerða sem oft hafa verið nefndar í umræðunni, þá er það frumvarp sem ríkisstjórnin kynnti korteri fyrir þinglok ekki lausnin. Það frumvarp sem var kynnt hér gerði ráð fyrir 3 milljarða lækkun á veiðigjöldum en sú lækkun fór að mestu til þeirra stærstu, um 80–85%. Ef við ætlum raunverulega að einblína á þá sem eru í vanda í sjávarbyggðunum eigum við ekki að fara þessa leið. Við eigum miklu frekar að fara þá leið sem að hluta til var kynnt í frumvarpinu sem lagt var fram, þ.e. að reyna að einblína á afsláttinn sem beinist að litlum og smærri útgerðum og tengist svonefndum persónuafslætti til útgerða. Þá erum við að reyna að fókusera og einblína á þá sem verst eru staddir í greininni.
Það sama gildir um endurskoðun á almennum byggðakvóta. Þær tillögur liggja fyrir, hvernig hægt er að endurskoða það kerfi til þess að einblína á þær brothættu byggðir landsins sem enn hafa aðgang að almennum byggðakvóta. Þá útfærslu er hægt að fara í. Sú útfærsla styður sveitarfélögin á landinu, þau sveitarfélög sem hafa almenna byggðakvóta, og ýtir undir sjálfsákvörðunarrétt þeirra um það hvernig best er að útfæra almenna byggðakvóta. Færum völdin til sveitarfélaganna, til brothættu byggðanna á landsbyggðinni.
Ég vil hrósa forsætisráðherra fyrir að ganga þau svipugöng — þannig hefur maður upplifað það — að reyna ekki bara að sætta stjórnarandstöðuna og koma til móts við réttmætar kröfur hennar og ábendingar heldur ekki síður að sætta stjórnarliða og stjórnarflokkana. Ég veit að það hefur reynst erfitt, en mér finnst hæstv. forsætisráðherra hafa nálgast það mál með aðeins öðrum hætti en allir aðrir forsætisráðherrar sem ég hef starfað með. Ég vil helst hrósa henni fyrir það. Stjórnmálaumræðan bíður síðan til haustsins. Miðað við það sem menn hafa verið að segja hér í dag af hálfu stjórnarliða er greinilegt að haustsins bíður stórpólitískur slagur.
Við eigum náttúrlega að tala um fílinn í partíinu (Gripið fram í.) — eða í stofunni. Það er fíll í stofunni og það er íslenska krónan. Það er gott að fá það kallað hér úr þingsal. Við munum alltaf upplifa það aftur að komið verði til þingsins og vonir bundnar við auðsveipa þingmenn sem fara strax og hlýða kallinu, fara í það að lækka veiðigjöld í staðinn fyrir að ráðast að rótum vandans, sem er krónan, íslenska krónan. Við munum upplifa þetta aftur og aftur ef ekkert verður að gert. Ég vil líka benda á það að ef við ætlum að einblína á þá sem verst eru staddir í greininni þá eru það ekki bara ákveðnir hlutar, ákveðnar byggðir og litlar og smærri útgerðir. Við getum nálgast það á allt annan hátt en gert er með upprunalegu frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Það eru ekki síður vinnslur víða á landsbyggðinni, ekki síst án kvóta. Þær eru í vanda staddar. Þær myndu ekki síst græða á því að tækjum á endanum upp nýja peningamálastefnu. Allur sjávarútvegurinn myndi hagnast á því sem og ferðaþjónustan.
Ég fagna því að búið er að leysa þetta mál tímabundið. Það hefur verið sett í kæli. Það á að framlengja núverandi fyrirkomulag, núverandi gjaldtöku. Ég styð það. Mér fannst vont að heyra talað um það hér áðan að eiginlega sé búið að ákveða hvernig fyrirkomulagið eigi að vera. Enn og aftur eru vísbendingar um að ekki eigi að reyna að ná sátt í þessari mikilvægu atvinnugrein. Mér finnst það vond skilaboð ef við förum heim fyrir sumarið og fáum síðan annað frumvarp, þegar við mætum hér á ný, sem á ekki bara að troða ofan í stjórnarandstöðuflokkana heldur líka hluta af stjórnarflokkunum. Ég veit að Vinstri græn eru í hjarta sínu ekki sátt við þær leiðir og þær úrlausnir sem kynntar voru af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að hafa forgöngu um það að reyna að ná sem breiðastri sátt um þessa atvinnugrein, að við náum sátt um gjaldið fyrir sameiginlega auðlind okkar Íslendinga sem er fiskurinn í sjónum. Ég veit að það er hægt, það má ekki gefast upp við það. Ég hef enn tröllatrú á því að við getum miðlað málum. Við höfum sýnt það hér á síðustu dögunum að það er hægt. Ólík öfl innan þingsins geta náð saman um mikilvæga hluti. Við eigum að reyna að nýta þann vilja í þágu sjávarútvegs og almannahagsmuna.