veiðigjald.
Herra forseti. Þetta mál hefur lengi verið þrætuepli í stjórnmálunum. Stærsta vandamálið í þessu er kannski það viljaleysi að reyna að ná einhverri þverpólitískri niðurstöðu um málið og hefur þýtt það að sífellt er verið að fikta í hvernig veiðigjöld eru reiknuð út frá einu tímabili til annars og það skapar auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleika fyrir greinina. Það er samstaða um það, hygg ég, í þessum sal að heppilegra væri að álagningin væri nær í tíma.
Hins vegar er rétt að hafa í huga að þetta fyrirkomulag hefur verið við lýði um allnokkurt skeið og var algjörlega fyrirsjáanlegt hvaða gjöld yrðu lögð á greinina í ár út af þessu. Það væri kannski heppilegra að vanda til verka ef á að endurskoða þetta fyrirkomulag, sem ég held að víðtæk sátt gæti náðst um. Auðvitað er sorglegt að horfa til þess að fáir virðast hafa trú á markaðslausn í þeim efnum, þ.e. að greinin verðleggi í raun og veru þessar veiðiheimildir sjálf, hvaða gjald sé sanngjarnt eða eðlilegt út frá markaðsaðstæðum hverju sinni og stjórnmálamönnum falið þess í stað að reyna að finna út úr því með misgóðum árangri.
Þegar talað er um að þingið og minni hlutinn standi í vegi fyrir því að tekið sé á vanda lítilla og meðalstórra útgerða, þá er það auðvitað ekki það sem frumvarpið snerist um, 80% þeirrar lækkunar sem það fól í sér hefði farið til stærri útgerðanna. Ef komið hefði verið fram með frumvarp sem hefði snúið að vanda lítilla og meðalstórra útgerða þá held ég að hér hefði getað skapast ágætissátt um það. Það er á ábyrgð þeirra sem fluttu málið hvernig það var lagt upp frá upphafi og augljóst að það var einfaldlega verið að beita vanda lítilla og meðalstórra útgerða fyrir sig sem afsökun fyrir því að lækka veiðigjöldin almennt.
Ef við hugsum til þess líka að þegar horft er á vanda útgerðarinnar sem slíkrar, þá er alveg rétt að síðasta ár virðist hafa verið útgerðinni þungt, m.a. út af styrkingu krónunnar, en ekki síst kannski vegna sjómannaverkfalls sem geisaði eða stóð yfir á fyrstu vikum ársins. Við sjáum mjög glögglega í útflutningstölum það sem af er ári að greinin er að rétta mjög hratt úr kútnum út af því og útflutningsverðmæti sjávarafurða hafa aukist um 22 milljarða á milli ára fyrstu fimm mánuði ársins, um liðlega 30%. Það ber ekki með sér að greinin sé komin að fótum fram.
Stærsta málið kannski í þessu öllu saman er hins vegar að það er ekki bara sjávarútvegur sem líður fyrir sterkt gengi, hátt raungengi, heldur allar útflutningsatvinnugreinar landsins, allar þær greinar og atvinnugreinar hér innan lands sem keppa við innflutning. Það væri kannski betur farið að ríkisstjórnin sýndi einhvern áhuga á því að taka á þeim vanda. Það væri hægt að gera með almennum hætti með því að leggja fram t.d. tillögur um lækkun tryggingagjalds. Það væri líka hægt að gera með því að stuðla þannig að stjórn ríkisfjármála að vaxtastig í landinu myndi lækka sem kæmi þá fyrirtækjunum öllum til góða og almenningi.
En nei, einhvern veginn er það alltaf svo og hefur verið í raun og veru um áratugaskeið að áhugi stjórnmálamanna virðist fyrst og fremst snúa að vanda sjávarútvegs í þessum efnum en ekki annarra útflutningsatvinnugreina í landinu. Þarna verðum við einfaldlega að gæta jafnræðis. Það líða öll fyrirtæki fyrir það ástand sem er í himinháu gengi krónunnar og mikillar raungengisstyrkingar sem hefur átt sér stað á undanförnum árum. Það væri kannski við hæfi að við reyndum einu sinni að taka á þeim vanda með almennum hætti, taka á rót vandans, sem er auðvitað þessi örmynt, þessi óstöðuga mynt sem við búum við og það háa vaxtastig sem hún hefur leitt af sér. Það hefur ítrekað verið sýnt líka að enginn vilji er fyrir því.
Staðreyndin er sú, ef við horfum á staðreyndir máls, að sem betur fer hefur sjávarútvegur heilt yfir á undanförnum árum verið vel rekin atvinnugrein. Kvótakerfið hefur skilað mikilli hagræðingu í greininni. Útflutningsverðmæti hafa verið að aukast jafnt og þétt. Fiskverð eða sjávarafurðaverð í erlendri mynt hefur hækkað um liðlega 50% á röskum áratug og það er fagnaðarefni. Það er fagnaðarefni að almennt hafi gengið vel í greininni.
Það er ekkert það neyðarástand, alla vega hvað afkomu stærri útgerða varðar við þær kringumstæður sem hér eru, sem kallar á svo óvönduð vinnubrögð sem hér voru ástunduð, að koma fram á síðustu stundu með það frumvarp sem síðan hefur verið dregið til baka.
Ég hvet hæstv. sjávarútvegsráðherra til að sýna ögn meiri sáttavilja í þessu máli en greina mátti í máli hv. þm. Teits Björns Einarssonar, að hér eigi einfaldlega bara að valta yfir minni hlutann að nýju í haust. Ég held að það væri þess virði að reyna (Forseti hringir.) einu sinni að ná einhverri þverpólitískri sátt um þetta.