veiðigjald.
Herra forseti. Við í Viðreisn munum styðja við framlengingu á gjaldtökuheimildinni varðandi veiðigjöldin og þá sátt sem náðist undir lokin um það umdeilda frumvarp ríkisstjórnarinnar sem var reyndar flutt af atvinnuveganefnd; er engu að síður, að mínu mati, ríkisstjórnarfrumvarp. Tilgangi frumvarpsins var ekki náð, þ.e. að hjálpa raunverulega litlum og meðalstórum útgerðum. Engan veginn. Allar tölur, allar skýrslur sem hafa verið unnar, vilji menn á annað borð lesa þær, sýna fram á að frumvarpið náði ekki tilgangi sínum. Ég lýsi því hér yfir að við í Viðreisn viljum vinna að og stuðla að sátt til þess að hjálpa þeim útgerðum sem á þurfa að halda og hjálpa þá þeim litlu útgerðum, sérstaklega á landsbyggðinni, sem við getum stutt við. Þetta var ekki leiðin til að gera það, aðrar leiðir eru betri og færari. Ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að vinna það frumvarp sem nú þegar er búið að boða í meiri sátt en gert hefur verið með það frumvarp sem við erum að leggja til hliðar með þeirri afgreiðslu sem verið er að fara í.