veiðigjald.
Virðulegi forseti. Eftir stutta en snarpa umræðu um veiðigjöld á þessa mikilvægu atvinnugrein finnst mér alveg ljóst að þegar við tökum aftur upp þráðinn í haust verði mikil þörf á því að fyrir þingið verði lögð þau gögn sem hafa verið unnin í vetur, m.a. af veiðigjaldsnefndinni, um það hvernig veiðigjöldin í dag eru orðin allt annað og miklu hærra, reyndar margfalt, hlutfall framlegðar útgerðarinnar. Það sem maður tekur eftir í þingsal er að allir halda að það eigi aðeins við um lítil og meðalstór fyrirtæki. Það á við um öll útgerðarfyrirtæki í landinu. Vegna þeirrar tafar sem er á álagningu gjaldanna birtist þetta með þeim hætti að skattar og gjöld eru orðin allt annað hlutfall af rekstrartekjum en áður var. Þá umræðu þurfum við að taka upp af alvöru í haust.