skilyrðislaus grunnframfærsla.
Virðulegur forseti. Ég stend að meirihlutaáliti með frávísunartillögu sem er ein af þeim frávísunartillögum þar sem manni finnst nafnið ekki alveg eiga við því að við erum að vísa tillögunni áfram í frekari vinnslu á vettvangi sem ég held að eigi eftir að vinna mjög vel úr því að greina kosti og galla borgaralauna og hvernig sú hugmyndafræði getur tvinnast inn í framtíðina hér á landi. Ég er mjög ánægður með vinnuna í velferðarnefnd og hlakka til að sjá hvað gerist í þeirri vinnu sem tekur við að lokinni þessari afgreiðslu. (Gripið fram í: Framvísun?)