148. löggjafarþing — 75. fundur,  11. júní 2018.

kjararáð.

630. mál
[18:33]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er í raun af hv. efnahags- og viðskiptanefnd verið að leggja til að leggja niður kjararáð. Fyrir liggur að frumvarp mun koma í haust um nýtt fyrirkomulag launa æðstu ráðamanna þar sem fylgt verður niðurstöðum nefndar sem starfaði á vegum ríkisstjórnarinnar í janúar. Þar var lagt til að fyrirkomulag hér á landi yrði fært til þess sem gerist á Norðurlöndum þar sem laun æðstu embættismanna eru tengd launaþróun á opinberum markaði. Ég vonast til þess að þetta geti skapað aukna sátt á vinnumarkaði um launaákvarðanir æðstu embættismanna. Um leið vil ég segja, vegna þeirrar breytingartillögu sem lögð er fram við frumvarpið, að ég mun greiða atkvæði gegn henni enda liggur fyrir í skýrslu sem skilað var til stjórnvalda — þar sem allir aðilar, utan einn, féllust á að ekki væri skynsamlegt að fara að lækka laun með afturvirkum hætti, að laun þeirra sem heyra undir kjararáð eru óbreytt út þetta ár — (Forseti hringir.) enda mun meðaltal launaþróunar þeirra hópa vera í takti við launaþróun á almennum vinnumarkaði á árunum 2013–2018. Ég bið hv. þingmenn að hafa þær staðreyndir í huga sem birtast í þessari skýrslu.