148. löggjafarþing — 75. fundur,  11. júní 2018.

stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.

480. mál
[18:45]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég kem fyrst og fremst upp til þess að þakka nefndinni fyrir góða vinnu við að afgreiða byggðaáætlun sem og öllum öðrum þingmönnum sem ég hlýddi á sem tóku þátt við fyrri umr. og aftur í dag. Það er ljóst að í salnum er mikill áhugi á byggðaáætlun. Þessi byggðaáætlun er held ég að megi segja sú vandaðasta sem við höfum lagt fram. Hún hefur farið í gegnum meira samráð en flestar aðrar, er betur fjármögnuð og betur undirbyggð. Það eru í henni mælikvarðar og líka tæki til að tryggja að henni verði fylgt eftir með bæði upplýsingagjöf til þingsins og umræðu á vettvangi ríkisstjórnar og úti í samfélaginu. Ég vildi fyrst og fremst koma upp og þakka fyrir þetta, þó að við séum ekki byrjuð að greiða atkvæði heyrði ég tóninn í þingmönnum í dag.