stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.
Virðulegi forseti. Við afgreiðslu málsins liggja fyrir tvær breytingartillögur. Önnur er frá meiri hluta og þá breytingartillögu mun ég styðja. Hin er frá minni hluta og þá breytingartillögu mun ég ekki styðja því að ég tel að efnið sé í raun innifalið í breytingartillögu meiri hlutans sem dró fram í vinnu sinni verulega viðbótaráherslu á skógrækt frá því sem lá fyrir þegar tillagan var lögð fram. Bætt er við markmiði og meiri hlutinn dregur fram að skógrækt hafi þá sérstöðu að vera einn af lykilþáttum í aðgerðum í loftslagsmálum auk þess að vera lykilþáttur í atvinnusköpun í dreifðum byggðum til langrar framtíðar. Því miður tel ég breytingartillögu minni hlutans, sem er tillaga um nýja aðgerð í skógrækt, ekki (Forseti hringir.) alveg í takt við áætlunina og því í rauninni frekar flækja málið en bæta.