148. löggjafarþing — 76. fundur,  11. júní 2018.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

484. mál
[22:34]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Virðulegur forseti. Innvirðulegar þakkir fyrir að hleypa mér hingað, það er mikill heiður að fá að komast að. Ég ætla í sjálfu sér ekki að lengja þessa umræðu. Jú, ég ætla náttúrlega að lengja hana eitthvað, annars hefði ég nú ekki komið hingað, en ég ætla ekki að lengja hana mikið. Mig langaði aðeins að koma inn á — því að þau eru nátengd þessi tvö mál, þetta og það sem við ræddum hér á undan — að það er margt sem mér finnst hafa verið mjög lærdómsríkt í þessu ferli öllu er lýtur að ferðamálum sem við höfum tekið til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd.

Hvað þetta frumvarp varðar, eins og hv. framsögumaður, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, kom inn á, getur þýðing á orðum skipt gríðarlega miklu máli. Það segi ég ekki bara sem meðlimur í Bandalagi þýðenda og túlka heldur höfðu margir umsagnaraðilar áhyggjur af því að það gæti haft hamlandi áhrif á starfsemi þeirra ef ein þýðing væri notuð umfram aðra. Það er mikilvægt að við vöndum okkur við þetta.

Annars kom ég aðallega hingað upp til að loka hróshringnum úr hv. atvinnuveganefnd sem hófst hér fyrr í dag í umræðum um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Ég vil þakka fyrir það góða samstarf sem hefur verið í nefndinni um þetta mál og þá hrósa sérstaklega hv. framsögumanni. Ég tel ekki hallað á neinn þó að ég taki hv. framsögumann sérstaklega út fyrir, þó að ég hafi nú kannski búist við að hún þakkaði mér sérstaklega fyrir þetta gat ég unnt henni þess að draga framsögumanninn fram yfir mig í síðustu orðum sínum.

En gamanlaust hefur mér þótt þetta mjög lærdómsríkt. Nú er oft mikið talað um ósamlyndi á þingi. Það er nokkuð vinsælt umræðuefni að hér inni sé allt í ósamlyndi og hér rífist fólk og einhverjir troði einhverju í gegn og aðrir reyni að gera eitthvað annað o.s.frv. En mér hefur þótt samvinnan í hv. atvinnuveganefnd algerlega til fyrirmyndar, hvernig við höfum þvert á flokka getað sest yfir málin og skoðað þau efnislega og komist að sameiginlegri niðurstöðu. Það á að sjálfsögðu ekki við um öll mál. Í sumum málum eru einfaldlega skiptar skoðanir, ólík pólitík. En við höfum getað rætt málin nánast undantekningarlaust af mikilli yfirvegun. Ég vildi koma hingað upp til að þakka sérstaklega fyrir þetta samstarf. Nú veit ég ekki hversu oft hæstv. forseti hleypir mér aftur í stólinn. Ég nýti þá þetta tækifæri til að þakka fyrir þetta góða samstarf og segi eins og … (Gripið fram í.) Ekki kannski þegar við erum að fjalla um frumvörp atvinnuveganefndar, ég er ekki viss um að það séu fleiri þaðan, en ég get svo sem spilað það eftir eyranu. En ég segi bara eins og gangnamaðurinn sagði í eldhúsinu hjá ömmu minni, þegar hann var búinn að tæma kleinufatið sem hafði þó verið kúffullt: Ég þakka fyrir það sem komið er, vonast til að fá meira.