148. löggjafarþing — 76. fundur,  11. júní 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[22:41]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir áliti minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, með síðari breytingum.

Í nefndarálitinu segir, með leyfi forseta:

„Verðtrygging húsnæðislána var tekin upp á Íslandi árið 1979. Þá voru efnahagsaðstæður erfiðar, atvinnulíf og gjaldeyrisöflun einhæf og verðbólga mikil. Ætlað var að verðtryggingin stæði um skamma hríð.“

Síðan teygðist úr því og það virðist sem svo að enginn hafi haft kjark til þess að höggva á þennan hnút eða þennan höggorm því að verðtryggingin er eins og höggormur sem hefur umlukið hér allt allan þennan tíma. En vonin í þessu öllu er sú að fyrr í dag afgreiddum við mál í salnum sem skiptir verulegu máli, einhuga, þvert á flokka.

Þetta mál er mjög stórt. Þetta er eitt af stærri málum sem við tökum fyrir á þessu þingi og það er mjög miður að við skulum gera það í tímahraki í bláendann á þinghaldinu, við erum reyndar bara í 2. umr., en engu að síður er það út af fyrir sig áfangi að málið skyldi fást út úr nefnd þótt draga þyrfti það með töngum inn í þennan sal til að við gætum tekið hér alvöruumræðu.

Kollegi minn sem talaði á undan mér, hv. þm. Óli Björn Kárason, bauð reyndar ekki upp á mikla umræðu um málið, heldur las hann einfaldlega upp nefndarálit meiri hlutans og forðaði sér. Þetta minnir dálítið á 1. umr. um þetta mál, þar sem menn hóstuðu hérna upp einhverjum andsvörum, Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn, en Samfylkingin var ekki með, VG var ekki með, Píratar tóku ekki þátt. Það er út af fyrir sig fróðlegt fyrir 100 þúsund heimili í landinu að þeir flokkar sem ég nefndi hér síðast skuli dæma sig úr leik í þessu máli. Það er mjög fróðlegt. Auðvitað koma þeir til með að skýra það einhvern tímann, væntanlega fyrir einhverjum, af hverju það er.

Svo vill til að formaður Framsóknarflokksins hoppaði því sem næst hæð sína um daginn og fann hjá sér óvenjulegan kjark til að fagna því að skýrsla um peningastefnu kom út. Í henni er einmitt ýjað að því að taka þurfi húsnæðisliðinn út úr vísitölugrunni. Formaður Framsóknarflokksins sagði að þetta hefði verið stefna flokksins alla tíð. En orð og efndir fara ekki alltaf saman hjá þeim ágæta flokki, eins og við þekkjum t.d. úr staðarvalsmálinu um Landspítala við Hringbraut þar sem flokkurinn er búinn að snúast heilhring síðan í október síðastliðnum, afrek út af fyrir sig.

Treysti ég á þann stuðning? Nei, ekki alveg, myndi ekki leggja hann inn í banka. En auðvitað vænti ég þess að Framsóknarmenn finni hjá sér kjark til að styðja þetta mál eins og þeir hafa lofað að gera og standi einu sinni við það sem þeir segja.

Auðvitað er það þannig að sú tillaga sem hv. þm. Óli Björn Kárason vitnaði til hér áðan og er farin í faðm ríkisstjórnarinnar var náttúrlega lægsti samnefnari sem Framsóknarflokkurinn gat komið í gegn í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. Ég skil það og er svo sem ekkert að nudda mönnum upp úr því. Þetta er einfaldlega sú staða sem menn komu sér í, þeir kjökuðu sig inn í ríkisstjórn fyrir þrjá ráðherrastóla með engin mál. Auðvitað er það skiljanlegt. En ég vænti þess að núna þegar menn fá tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr grípi menn þann möguleika og noti hann.

Frú forseti. Ég segi aftur, þetta mál skiptir nefnilega svo ofboðslega marga rosalega miklu máli. Það kemur fram í nefndaráliti minni hlutans að bara á bilinu mars 2017 til mars 2018 munaði það lántakendur á Íslandi um 50 milljarða íslenskra króna að sá háttur sem lagður er til í frumvarpinu var ekki hafður á. Á síðustu fimm árum er þessi upphæð 118 milljarðar. Það kom fram um daginn í svari hæstv. fjármálaráðherra við fyrirspurn hv. þm. Ólafs Ísleifssonar. Úrtölumenn munu segja: Já, en þetta er ekki rétti tíminn. Hagkerfið er að kólna og húsnæðisverð fer að lækka og þetta er ekki rétti tíminn.

Ég get sagt ykkur, góðir hálsar: Það mun aldrei verða réttur tími í augum þessa fólks að taka af verðtryggingu eða breyta henni. Aldrei.

Hv. þm. Óli Björn Kárason vitnaði áðan í umsagnir sem borist höfðu. Þær voru eins og vænta mátti frá Viðskiptaráði Íslands og Samtökum sparifjáreigenda, sem eru helstu varðhundar verðtryggingar á Íslandi. Auðvitað mæltu þeir ekki með því að frumvarpið yrði samþykkt. Seðlabankinn lafhræddur með belti og axlabönd. Auðvitað lagði hann ekki til að frumvarpið yrði samþykkt. Aftur á móti gerði Alþýðusamband Íslands það. ASÍ lagði til að það yrði gert og hvatti til þess. Hagsmunasamtök heimilanna vildu ganga alla leið og afnema verðtryggingu. Það er náttúrlega það sem við stefnum að. Ef við ætlum að vera samkeppnisfær við nágrannalöndin þá hljótum við að gera það.

Menn af öðru sauðahúsi hérna segja gjarnan: Það er ekki hægt að gera það nema taka upp evru. Það er náttúrlega ekki hægt að gera neitt í margra augum nema taka upp evru og ganga í Evrópusambandið, það er lækningin á öllu, alveg sama hvað það er.

Þá vitna ég í það að í Noregi eru menn ekki með evru, þeir eru með norska krónu, sem er til skamms tíma búin að vera í frjálsu falli og féll þegar mest var um 20%. Það breytti ekki vaxtakjörum almennings á húsnæðislánum sem eru undir tveimur prósentum, óverðtryggt. Ef menn ætla að leita í næsta land við hliðina, til Danmerkur, er verðbólga þar. En það breytir ekki því að þar fá menn húsnæðislán með 2–2,5% vöxtum, óverðtryggt. Það vill þannig til að núna seinni árin hækkar meðalaldur þeirra sem kaupa íbúð í fyrsta sinn. Skiljanlega. Menn eru lengur við nám og mennta sig betur og eru lengur að því sem betur fer.

Mig minnir að ég hafi séð það í fyrra að meðalaldur fólks við fyrstu kaup á húsnæðismarkaði væri 32 ár. Hvað bjóðum við því fólki? Við bjóðum því lán sem eru með rosalega fína greiðsludreifingu og greiðslubyrði. Við segjum við fólkið: Nú ert þú þrítugur maður, eða kona, búinn að mennta þig vel, við ætlum að bjóða þér lán til 40 ára með verðtryggingu. Þú borgar mjög lítið á mánuði. Á lánstímanum muntu borga lánið fjórum sinnum. Mánaðarupphæðin mun líklega þrefaldast á þessum tíma og þú munt ekki sjá högg á vatni með lánið fyrr en síðustu fimm árin, fimm árum áður en þú ferð á eftirlaun.

Við getum ekki boðið einni kynslóð á Íslandi þetta einu sinni enn. Við getum ekki boðið fólki upp á það að kaupa fasteign í fyrsta sinn, borga hana fjórum sinnum á 40 árum og fara síðan á eftirlaun. Þetta er eitthvað sem fólk sættir sig einfaldlega ekki við.

Nú er það þannig, frú forseti, að fjölmargir aðilar hafa komist á þá skoðun að efni þessa frumvarps sé nauðsynlegt skref, virtir hagfræðingar. Það vill þannig til að einn situr hérna í salnum með okkur, hv. þm. Ólafur Ísleifsson. Ég gæti nefnt dr. Ólaf Margeirsson, efnilegur ungur hagfræðingur, sem hefur sagt bæði í ræðu og riti, m.a. á góðum fundi í Háskólabíói í aðdraganda síðustu þingkosninga, að við verðum að breyta þessu.

Tækifærið er núna, hv. þingmenn, vegna þess að við erum búin að sýna það einu sinni í dag að við getum tekist í hendur hérna þvert yfir salinn og ef það hefur einhvern tíma verið ástæða til að gera það, að taka höndum saman, allur þingheimur, í einu máli sem skiptir 100 þúsund heimili í landinu gríðarlegu máli, þá er það akkúrat núna. Allt sem þarf er vilji. Eins og skáldið sagði forðum: „Vilji er allt sem þarf“.

Það sem við þurfum að gera er að finna hjá okkur kjark og þor til að koma hingað upp og taka þátt í umræðunni. Og fengur væri að því að fá þingmenn Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Pírata og náttúrlega Sjálfstæðisflokksins, og ég tala ekki um þingmenn Viðreisnar, hingað upp til að segja okkur hvers vegna þetta er ekki hægt, til að segja okkur hvers vegna er ekki hægt að breyta þeim verðbólgugrunni sem er að éta heimili landsins innan frá, sem er að skemma fyrir fólki úti um allt land. Hvers vegna getum við ekki tekið höndum saman, hv. þingmenn, afgreitt þetta mál í eitt skipti fyrir öll, tekið þetta skref, (Forseti hringir.) landslýð öllum til heilla?