148. löggjafarþing — 76. fundur,  11. júní 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[22:52]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Frú forseti. Ég vil hefja mál mitt á að þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni 1. flutningsmanni þessa frumvarps, og meðflytjendum hans fyrir þeirra framtak í þessu máli. Í þessu máli, frú forseti, þá tala staðreyndirnar skýrt. Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson vísaði til nýlegs svars sem fjármálaráðherra gaf við fyrirspurn frá þeim sem hér stendur um það hver væru áhrif húsnæðisliðar vísitölunnar á greiðslur vegna verðtryggðra íbúðalána síðastliðin fimm ár. Þessar tölur, frú forseti, eru sláandi, þær eru hrópandi. Fram hjá þeim verður ekki litið. Þær eru svona: Verðbætur vegna almennra verðhækkana nema, á þessum fimm árum, 15 milljörðum sem leggjast ofan á heimilin. Vegna húsnæðisliðarins leggjast 118 milljarðar kr. ofan á heimilin. Þetta er meira en tvö þjóðarsjúkrahús miðað við þær tölur sem nýlega hafa verið veittar af heilbrigðisráðherra um kostnað við byggingu þess. Þetta eiga heimilin að taka á sig. Vegna hvers, frú forseti? Vegna þess að þessi húsnæðisliður hækkar. Af hverju hækkar þessi húsnæðisliður? Hann er að hækka af ýmsum ástæðum. Ég ætla að nefna hérna tvær.

Önnur er sú að í stærsta sveitarfélagi landsins er rekin stefna sem vegur þyngst við mat á húsnæðisverði, sem er sérviskuleg stefna, eins og menn þekkja, og ekki þeim til sóma sem að henni standa og á henni bera ábyrgð og sýnir sig í lóðaskorti hér ár eftir ár. Hvaða áhrif halda menn að lóðaskortur hafi á húsnæðisverð? Það er augljóst mál. Hin ástæðan sem ég vil nefna er sú að vegna mikils innstreymis ferðamanna hefur fjöldi íbúða, sem hafa verið hér í leigu eða sem í hefur búið venjulegt fólk, verið notaðar í skammtímaleigu fyrir ferðamenn. Hvaða áhrif halda menn að þetta hafi á þennan húsnæðislið? Auðvitað hækkar þetta hann.

Nú þegar við blasir að þessi meiri hluti sem hefur staðið fyrir lóðaskortinum verður áfram við völd í Reykjavík, halda menn að það verði einhver breyting á þeirri stefnu? Hvaða áhrif mun það hafa á heimilin í landinu? Þetta mun auðvitað halda áfram að hækka íbúðaverðið, framhald á þessari lóðaskortsstefnu, með þeim afleiðingum sem menn þekkja og eru nú fyrirsjáanlegar. Þess vegna kallaði ég eftir því, í eldhúsdagsumræðum hér frammi fyrir alþjóð, að ríkisstjórnin sæi til þess að húsnæðisliðurinn væri felldur brott án tafar úr vísitölunni. Það væri neyðarráðstöfun til þess að vernda heimilin, verja heimilin fyrir þessum ófögnuði, því þetta er ekkert annað en ófögnuður. Menn sjá í ljósi þessara talna að húsnæðisliðurinn er eins og hver önnur ófreskja sem étur heimilin að innan verðu og ofan af fólkinu. Fjölskyldur flæmast út og börn eru leidd út af heimilum sínum með róti og öryggisleysi. Hvaða land í okkar heimshluta býður fólki upp á svona? Svar: Ekki eitt einasta land. Ekki neitt.

Við eigum 30.000 manns Íslendingar í útlöndum. Hvað eigum við að segja við það fólk? Komið þið fagnandi heim á landið fagra og þið verðið tekin í náðarfaðm verðtryggingarinnar. Fólk sem á kost á því í nágrannalöndunum að taka lán til 30 ára eða hvað það nú er og það veit frá fyrsta degi upp á krónu hvað það á að borga á hverjum einasta gjalddaga út allan lánstímann. Haldið þið að það sé freistandi fyrir fólkið að koma heim upp á þessi býtti? Þessi verðtrygging, frú forseti, er tilraun. Og við, Íslendingar, erum tilraunadýrin. Hún er tilraun í samfélagslegri verkfræði. Verkin sýna merkin. Reynslan af þessu kerfi er ömurleg. Við eigum að hætta þessu vísitölufúski og við eigum að bjóða fólki hér upp á sambærileg kjör í fjármögnun íbúðarhúsnæðis og gerist og gengur í þriggja klukkutíma flugfjarlægð frá okkar landi, til að mynda í höfuðborgum Norðurlandanna.

Ég mælist eindregið til þess að þetta frumvarp verði samþykkt hér á þeim verðleikum sem það hefur. (Forseti hringir.) Það stuðlar að því að verja heimilin og fjölskyldurnar. (Forseti hringir.) Ég lýsi yfir stuðningi þingmanna Flokks fólksins við þetta frumvarp. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)