vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Ég fagna þessu frumvarpi og er einn af flutningsmönnum þess. Ég þakka fyrir þær góðu ræður sem hafa verið fluttar hér. Við sjáum að þetta mál er afar mikilvægt fyrir almenning í landinu. Ég verð að sama skapi að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með ræðu hv. þm. Willums Þórs Þórssonar sem lagði áherslu á að setja yrði málið í faglegt ferli o.s.frv. Hvað erum við búin að heyra það oft áður að það sé svo erfitt að framkvæma þetta og það þurfi að skoða þetta betur? Það er aldrei hægt að taka ákvörðun. Hluti af þessum vanda, að við sitjum enn uppi með verðtryggingu yfir höfuð, er að mínum dómi ákvarðanafælni stjórnmálamanna sem eru ekki tilbúnir til að takast á við vandann af djörfung. Það þarf að gera það.
Verðtryggingin er mannanna verk. Við þekkjum það, það hefur komið fram hér í þessum sal, að hún var sett árið 1979 með svokölluðum Ólafslögum og hafði reyndar verið við lýði frá 1955 að hluta með lögum um húsnæðismálastjórn, en þar var einungis einn fjórði hvers láns verðtryggður. Þá voru rökin, eins og við höfum heyrt hér, mikil verðbólga, tregða lánastofnana til lánveitinga, hvatning til sparnaðar og auk þess var mikil verðbólga á heimsvísu. Verðtryggingin var sem sagt sett til að bregðast við verulega neikvæðum aðstæðum í efnahagslífinu. Bankainnstæður og lán urðu að engu og bankar skiljanlega mjög tregir til að lána. Við þetta bættust svo aðstæður á heimsvísu eins og hátt olíuverð. Í dag búum við við allt aðrar aðstæður, bæði á heimsvísu og hér heima. Engu að síður er verðtryggingin við lýði.
Í sögulegum og efnahagslegum samanburði er engin þörf fyrir verðtryggingu á Íslandi í dag. Þess vegna fagna ég frumvarpinu. Það er fyrsta skrefið í þá átt að gera búsetuskilyrði á Íslandi mannsæmandi í samanburði við aðrar þjóðir. Eins og hv. þm. Ólafur Ísleifsson rakti svo vel hér áðan býr fjöldi Íslendinga erlendis og hefur sjálfsagt takmarkaðan áhuga á að koma hingað heim, m.a. vegna þess að húsnæðislánin hér eru með allt öðrum og neikvæðari hætti en hjá nágrannaþjóðunum.
Fyrir kosningar heyrum við stjórnmálaflokkana reglulega lofa því að draga úr vægi verðtryggingar eða fella hana niður. Við þekkjum efndirnar, þær eru engar. Þess vegna segi ég: Það er kominn tími til að framkvæma. Við gætum farið þá leið sem var farin 1955, að trappa verðtryggingu niður, vægi hennar, með þeim hætti að þrír fjórðu láns yrðu verðtryggðir. Síðan væri hægt að færa það niður í helming og svo einn fjórða af hverju láni. Þannig væri hægt að skapa aðstæður sem myndu skipta almenning verulega miklu máli, en hins vegar væri hægt að fara varlega í efnahagslegu tilliti eins og hv. þm. Willum Þór Þórsson nefndi réttilega áðan, að við þurfum að fara varlega og setja þetta í ferli o.s.frv. Af hverju er ekki hægt að fara þessar leiðir? Málið þarf alltaf að fara í einhverja nefnd og það er setið yfir því og svo er málið þæft, alveg eins og hér í þessum þingsal. Nú er verið að koma með þetta mál hér inn, þetta mikilvæga hagsmunamál fyrir almenning, á síðustu metrum þingsins eins og hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson nefndi áðan. Það sýnir að stjórnarflokkarnir hafa engan áhuga á þessu. En fyrir kosningar hafa þeir að sjálfsögðu áhuga og ætla að gera allt til að bæta úr og lofa öllu fögru en svo gerist ekki neitt.
Herra forseti. Það er ljóst í mínum huga að partur af þessu máli er einfaldlega ákvarðanafælni stjórnmálamanna. Ég skora á ríkisstjórnina að hleypa frumvarpinu í gegn. Um er að ræða gríðarlegt hagsmunamál fyrir almenning á Íslandi. Það er löngu tímabært að það óréttlæti sem fylgir verðtryggingunni á Íslandi verði afnumið.