afgreiðsla máls frá Miðflokknum.
Virðulegi forseti. Ég held að mikilvægt sé læra af þessari uppákomu hér. Ég tek undir það með hv. þm. Bergþóri Ólasyni að maður vonaðist til þess að staðið yrði við stóru orðin sem féllu af hálfu forsætisráðherra og fleiri í ríkisstjórninni um að nú ætti allt að verða betra og myndi ganga eftir, en svo er aldeilis ekki. Því er vitanlega mikilvægt að við höfum það í huga að útbúa okkur einhvers konar form í þinginu til að gera samkomulag á eða um. Það gengur ekki að menn geti gengið glottandi um salinn og svikið það sem samið er um. Það er vitanlega ekki mönnum bjóðandi.
Auðvitað er biturleikinn hjá mörgum mjög mikill þessa dagana, ekki síst eftir afhroð í sveitarstjórnarkosningum. Það er ósköp eðlilegt að illa gangi að hemja sig hér. En ég held að hins vegar að ljóst sé að við munum illa geta liðið að fram við okkur sé komið á einhvern annan hátt en aðra í þessum þingsal, þótt það sé einhver biturleiki hjá formanni Framsóknarflokksins.