148. löggjafarþing — 77. fundur,  12. júní 2018.

afgreiðsla máls frá Miðflokknum.

[15:18]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Þessi tillaga er mikilvæg fyrir almenning, eins og ég nefndi hér áðan. Það er líka mikilvægt fyrir almenning að bera ákveðna virðingu fyrir þessari stofnun. Það sem við höfum orðið vitni að er því miður ekki á þann veginn. Ég vil hvetja hæstv. forsætisráðherra til þess að beita sér fyrir því í samvinnu við hæstv. forseta að ná samkomulagi við okkur í Miðflokknum um þetta mál. Það er öllum til gagns. Ég skil bara ekki þennan ótta ríkisstjórnarflokkanna við það að málið komi hér inn. Rétt eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nefndi er ekki verið að fara fram á að menn samþykki þessa tillögu, heldur einfaldlega að hún fái hér afgreiðslu. Það hljóta að vera einhverjar ástæður fyrir því að menn vilja ekki fá málið hingað inn. Ég hvet ykkur í ríkisstjórninni, ríkisstjórnarflokkana, til þess að endurskoða hug ykkar í þessum efnum til þess einfaldlega að bæta virðingu þessarar ágætu stofnunar.