148. löggjafarþing — 77. fundur,  12. júní 2018.

afgreiðsla máls frá Miðflokknum.

[15:22]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég botna hvorki upp né niður í því sem gengur á í þingsalnum núna. Eru hv. þingmenn Miðflokksins í alvörunni að leggja það til að hæstv. forseti Alþingis geri breytingu á afgreiðslu hv. efnahags- og viðskiptanefndar? (Gripið fram í: Já.) Er það í alvöru það sem verið er að leggja til? Málið var afgreitt út úr nefndinni með fullri vitneskju þeirra sem sátu þann fund um hver afgreiðsla yrði í nefndinni. Og það er á herðum þeirra þingmanna sem sátu þann nefndarfund hvernig afgreiðslunni var háttað. Málið var afgreitt út úr nefnd og það var afgreitt með þessum nefndarálitum. Málið hefur fengið umræðu, fékk ágætisumræðu í gær, en nú virðist sem hv. þingmenn vilji með einhverjum hætti beina forseta í þann farveg að breyta afgreiðslu sem átti sér stað í nefnd. Það er algjör þvæla, hv. þingmaður.